HomeFréttirNjarðvík í undanúrslit Maltbikarsins

Njarðvík í undanúrslit Maltbikarsins

Njarðvík tryggði sér sæti í undanúrslitum Maltbikars kvenna sem fram fara í Laugardalshöllinni í byrjun næsta árs. 

 

Njarðvík tók á móti nýliðum Dominos deildarinnar, Breiðablik. Njarðvík komst mest fjórtán stigum yfir í byrjun seinni hálfleiks en Blikum tókst heldur betur að saxa á forystuna í lokin. 

 

Það var þó ekki nóg þvi Njarðvík vann að lokum 77-74 sigur. Liðið sem enn er án sigurs í Dominos deildinni hefur nú slegið tvö lið úr Dominos deildinni úr Maltbikarnum en Stjarnan lág í valnum í 16. liða úrslitum. 

 

Njarðvík er þannig komið í undanúrslit sjöunda árið í röð. Það kemur í ljóst hverjir andstæðingarnir verða en Snæfell, Keflavík og Skallagrímur verða í pottinum þegar dregið verður á þriðjudaginn.

 

Myndasafn og tölfræði úr leiknum má finna hér að neðan:

 

Tölfræði leiksins

 

Myndasafn (Bjarni Antonsson)

 

Njarðvík-Breiðablik 77-74 (13-18, 29-14, 17-26, 18-16)

Njarðvík: Shalonda R. Winton 36/26 fráköst/8 sto?sendingar, María Jónsdóttir 10/15 fráköst, Björk Gunnarsdótir 8/7 sto?sendingar, Karen Dögg Vilhjálmsdóttir 8, Erna Freydís Traustadóttir 7, Hrund Skúladóttir 6, Hulda Bergsteinsdóttir 2, Aníta Carter Kristmundsdóttir 0, Hei?a Björg Valdimarsdóttir 0, Ása Bö?varsdóttir-Taylor 0. 

Brei?ablik: Sóllilja Bjarnadóttir 21/9 fráköst, Isabella Ósk Sigur?ardóttir 19/14 fráköst/5 varin skot, Ivory Crawford 14/19 fráköst/5 sto?sendingar, Telma Lind Ásgeirsdóttir 9, Lovísa Falsdóttir 6, Au?ur Íris Ólafsdóttir 5/6 sto?sendingar, Melkorka Sól Péturdóttir 0, Eyrún Ósk Alfre?sdóttir 0, Inga Sif Sigfúsdóttir 0, Arndís Þóra Þórisdóttir 0, Kristín Rós Sigur?ardóttir 0, Hafrún Erna Haraldsdóttir 0. 

 

Fréttir
- Auglýsing -