Nú er ljóst hvaða lið verða í pottinum þegar dregið verður í undanúrslit Maltbikars karla á morgun.
KR, Tindastóll og Breiðablik komust áfram með góðum sigrum í kvöld. Leikur Tindastóls og ÍR var hnífjafn og réðst í lok leiks. Höttur knúði fram framlengingu í Smáranum gegn Breiðablik en heimamenn unnu framlenginguna og eru þar með eina 1. deildar liðið í undanúrslitunum. KR fór auðveldlega með Njarðvík á útivelli.
Í gær komust Haukar áfram með sigri á Keflavik og það verða því KR, Tindastóll, Breiðablik og Haukar sem verða í pottinum þegar dregið verður í undanúrslitum í hádeginu á morgun.
Úrslit kvöldsins:
Maltbikar karla:




