HomeFréttirRashad Whack á leið frá Grindavík

Rashad Whack á leið frá Grindavík

Dominos deildar lið Grindavíkur hefur ákveðið að láta erlenda leikmann sinn Rashad Whack fara frá liðinu og er leit af nýjum atvinnumanni hafin. Þetta greindi Vísir.is frá fyrr í dag. 

 

Whack endaði með 22,8 stig, 4,5 fráköst og 2,6 stoðsendingar að meðaltali í leik fyrir Grindavík en þótti ekki nægilega góður til þess að leika áfram með liðinu. 

 

Samkvæmt Vísi er ólíklegt að Whack leiki með Grindavík í síðasta leik ársins gegn Þór Ak á fimmtudaginn og hefur hann því leikið sinn síðasta leik fyrir liðið.

 

Mikið hefur verið rætt um leikmanninn en Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson hefur sagt það á Twitter að hann vilji sjá hann fara. Jóhann Þór staðfesti einnig við Karfan.is í síðustu viku að þreyfingar hefði átt sér stað en ekkert væri klárt í þeim málum. 

 

Samkvæmt Vísi.is hefur ekki verið samið við nýjan leikmann en Lewis Clinch Jr. hefur verið orðaður við liðið en hann lék með þeim á síðustu leiktíð. 

 

 

Fréttir
- Auglýsing -