HomeFréttirPétur og Arnar leiddu Stólana til sigurs

Pétur og Arnar leiddu Stólana til sigurs

 

Garðbæingar fengu heimsókn að norðan í kvöld í síðasta leik ársins. Stólarnir hafa eilítið misst flugið að undanförnu en höfðu þó sigur gegn ÍR í bikarkeppninni í síðasta leik. Stjörnumenn virðast hins vegar vera frekar á uppleið eftir svolitla krísu fyrr á tímabilinu. Það er stutt á milli liða í deildinni og heimamenn geta minnkað muninn á liðinum í aðeins 2 stig með sigri í kvöld.

 

Spádómskúlan: Í kúlunni sést glitta í glottandi Hester þar sem hann skokkar í gegnum framtíðarmóðuna og gefur S. Arnari háa fimmu. Í bakgrunni má koma auga á landsliðsfyrirliðann heldur súran á svip. Úr þessu les ég 77-91 sigur gestanna þar sem Hester og Arnar hafa betur að lokum þrátt fyrir mikla og góða baráttu Hlyns og félaga.

 

Þáttaskil

 

Leikurinn byrjaði mjög fjörlega með þristasýningu frá báðum liðum. Þó svo varnarleikur liðanna hafi ekki litið neitt illa út voru bæði lið komin með 23 stig þegar lítið var eftir af fyrsta leikhluta. Heimamenn enduðu hann betur og eftir flautuþrist frá Tomma leiddu heimamenn 28-23. Heimamenn áttu svo verulega góðan annan leikhluta. Þeim tókst að hafa góðar gætur á Hester í sameiningu og það leiddi gestina svolítið út í einstaklingsframtök. Aftur á móti var spilamennska Stjörnumanna prýðileg og hittnin góð. Það skilaði sér í 53-39 stiga forskoti þeirra í hálfleik. Israel Martin og spádómskúlan voru sammála um að þetta væri frekar öfugsnúin staða.

 

Það ætti ekki að hafa komið neinum á óvart að gestirnir  mættu í áhlaupsgír í seinni hálfleikinn enda með frábært lið sem lætur 14 stig ekki vaxa sér í augum. Það voru bara 4 mínútur liðnar af þriðja leikhluta þegar Stólarnir voru komnir yfir, 55-56! Arnar og Pétur sáu að mestu um stigaskorið og vörnin varð aggressívari. Stemmningin var öll hjá gestunum og engu líkara en bæjarleikurinn í Garðabæ væri farinn að renna norður til Skagafjarðar. Heimamenn rönkuðu við sér að lokum og héldu í við gestina, staðan 66-68 eftir þriðja.

 

Eins og oft vill verða hægðist allmikið á stigaskorinu í lokaleikhlutanum. Þegar 4:30 voru eftir höfðu heimamenn aðeins sett 5 stig gegn 12 gestanna og staðan 71-80. Þarna var tilfinningin sú að heimamenn myndu tæplega skora meira en 9 stig það sem eftir lifði leiks og það hlakkaði í spádómskúlunni. Það varð einmitt raunin, Stjarnan skoraði akkúrat 9 stig og 6 sex stig frá gestunum skiluðu þeim 80-86 sigri í mjög skemmtilegum leik.

 

Tölfræðin lýgur ekki

 

Jafnt er á komið hjá liðunum víðast hvar í tölfræðinni. Mest ber á milli hvað varðar nýtingu í tveggja stiga skotum en gestirnir eru þar með 47% nýtingu en heimamenn aðeins 36%.

 

Bestu leikmenn

 

Pétur og Arnar voru bestu leikmenn gestanna. Pétur setti 27 stig og tók 7 fráköst og Arnar skilaði 17 stigum, 4 fráköstum og 5 stoðsendingum.

 

Hjá Stjörnumönnum voru allmargir að skila ágætis molum í pokann þó það hafi ekki dugað til. Sherrod var stigahæstur með 17 stig en Hlynur hefur litið bjartari daga eins og kúlan sá fyrir.

 

Kjarninn

 

Stjörnumenn spiluðu alveg hreint ágætlega í þessum leik. Varnarleikurinn var á löngum köflum mjög fínn og Hester var alls ekki jafn áberandi og oft áður. Það var einkum fyrri hluti þriðja leikhluta sem er gagnrýniverður – það gengur ekki að glotra niður 14 stiga forskoti á örfáum mínútum. 

 

Stólarnir fundu ekki taktinn í fyrri hálfleik, Hester var í góðri gæslu og einstaklingsframtak full áberandi á köflum. Þeir fundu samt leiðina að sigri, vörnin varð aggressívari og Arnar og Pétur fóru fremstir í flokki sóknarlega. Af þessum leik að dæma er Hester ekkert ómissandi púsl í liði Stólana þrátt fyrir rýra uppskeru undanfarið.

 

Tölfræði leiksins

 

Umfjöllun / Kári Viðarsson 

Fréttir
- Auglýsing -