Lykilleikmaður 13. umferðar Dominos deildar kvenna var leikmaður Stjörnunnar, Danielle Rodriguez. Í sigri Stjörnunnar á erfiðum útivelli í Borgarnesi skoraði Rodriguez 46 stig, tók 11 fráköst, gaf 11 stoðsendingar og stal 3 boltum. Í heildina skilaði hún 59 framlagsstigum fyrir liðið í leiknum, en það er það mesta sem nokkur leikmaður hefur gert í einum leik það sem af er vetri.
Aðrar tilnefndar voru leikmaður Breiðabliks, Ísabella Ósk Sigurðardóttir, leikmaður Hauka, Helena Sverrisdóttir og leikmaður Vals, Alexandra Petersen.
Lykilleikmaður 13. umferðar Dominos deildar kvenna? #korfubolti
— Karfan.is (@Karfan_is) December 13, 2017




