Breiðablik heldur áfram að styrkja sig fyrir átökin í 1. deild karla. Í dag gerði liðið samning við Erlend Ágúst Stefánsson um að leika með liðinu það sem eftir er af tímabilinu. Erlendur er bæði með reynslu úr 1. og Dominos deild sem og lék hann háskólabolta í Bandaríkjunum með Black Hills State University.
Á síðasta tímabili lék Erlendur með Hamri í Hveragerði, en þar skilaði hann 18 stigum og 4 fráköstum að meðaltali í leik.




