Átta leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Topplið austurstrandarinnar, Toronto Raptors tapaði sæti sínu er þeir lágu fyrir neðsta liði vesturstrandarinnar, Dallas Mavericks. Greinilega einhver þreyta komin í Rptors liðið, sem fyrir leik næturinnar hafði unnið sex leiki í röð. Þeirra besti leikmaður DeMar DeRozan setti aðeins 3 af 16 skotum sínum af vellinum niður.
Þá sigruðu Phoenix Suns lið Memphis Grizzlies með þessari laglegu flaututroðslu miðherjans Tyson Chandler.
Indiana Pacers 83 – 107 Detroit Pistons
Toronto Raptors 93 – 98 Dallas Mavericks
Orlando Magic 89 – 107 Miami Heat
Chicago Bulls 115 – 106 Milwaukee Bucks
Brooklyn Nets 97 – 109 San Antonio Spurs
Utah Jazz 83 – 107 Denver Nuggets
Memphis Grizzlies 97 – 99 Phoenix Suns
Sacramento Kings 95 – 122 LA Clippers




