HomeFréttirHörður Axel í Keflavík

Hörður Axel í Keflavík

 

Leikstjórnandinn Hörður Axel Vilhjálmsson hefur samið við Dominos deildar lið Keflavíkur um að leika með þeim það sem eftir er af tímabili í úrvalsdeildinni. Hörður var fyrri hluta vetrar hjá Astana í Kasakstan, en losnaði þaðan rétt fyrir jól. 

 

Hörður lék síðast með Keflavík seinni hluta síðasta vetrar, en þá skilaði hann 16 stigum, 5 fráköstum og 7 stoðsendingum að meðaltali í leik.

 

Fyrsti leikur Harðar aftur með Keflavík verður gegn Val þann 4. janúar næstkomandi.

Fréttir
- Auglýsing -