HomeFréttirBleacher Report spá því að Tryggvi fari með 56. valrétt inn í...

Bleacher Report spá því að Tryggvi fari með 56. valrétt inn í NBA deildina

 

Miðherjinn efnilegi, leikmaður Valencia og íslenska landsliðsins, Tryggvi Snær Hlinason er samkvæmt Bleacher Report á leiðinni inn í NBA deildina á næsta ári. Í nýlegu plat-vali sínu fyrir nýliðaval næsta vors eru þeir með leikmanninn í valrétt númer 56 inn í deildina. Hvaða lið það verður er ekki enn komið í ljós því að eftir á að leika alla leiki í næstu leiktíð, en samkvæmt stöðunni í dag væri það lið Charlotte Hornets sem myndi velja hann.

 

Vissulega er langt þangað til að nýliðavalið fer fram og er það víðsfjarri að ákkúrat þessi tala, 56, sé neitt sem á eitthvað örugglega eftir að standast. Þó verður að þykja merkilegt að jafn víðlesin síða og Bleacher Report er í raun, sé með miðherjann á þessum lista hjá sér.

 

Efstu menn í plat-vali næsta árs:

#1: Deandre Ayton

#2: Luka Doncic

#3: Marvin Bagley III

#4: Trae Young

#5: Michael Porter Jr.

#6: Mohamed Bamba

#7: Jaren Jackson Jr.

#8: Collin Sexton

#9: Wendell Carter Jr.

#10: Kevin Knox

#56: Tryggvi Snær Hlinason

 

Hérna er hægt að lesa meira um listann

Fréttir
- Auglýsing -