Kjör á íþróttamanni ársins fór fram í gær við hátíðlega athöfn í Hörpu. Fáum líklega komið á óvart að verðlaun hafi farið til Ólafíar Þórunnar Kristinsdóttur golfara, íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu og þjálfara þess Heimis Hallgrímssonar.
Við kjörið var atkvæðadreifing kosningarinnar gerð ljós, en þar má sjá að efstur körfuknattleiksmanna á lista í kjöri íþróttamanns ársins var Martin Hermannsson. Martin var nú fyrir jól valinn körfuknattleiksmaður ársins, en hann endaði í 15. sæti kosningarinnar með 16 stig.
Í flokki liðs ársins var það kvennalið Keflavíkur sem var efst körfuboltaliða í 6. sætinu með 13 stig. Rétt fyrir aftan var karlalið KR í 8. sætinu með 6 stig.
Í flokki þjálfara ársins var þjálfari karlaliðs KR, Finnur Freyr Stefánsson efstur körfuknattleiksþjálfara í 6. sætinu með 4 stig. Í 9. sætinu var svo þjálfari kvennaliðs Keflavíkur, Sverrir Þór Sverrisson með 2 stig.
Íþróttamaður ársins
1. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, golf – 422
2. Aron Einar Gunnarsson, knattspyrna – 379
3. Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrna – 344
.
15. Martin Hermannsson, körfubolti – 16
Lið ársins
1. A-landslið karla, knattspyrna – 135
2. Þór/KA, knattspyrna – 27
3. Valur, handbolti – 22
.
6. Keflavík, körfubolti – 13
8. KR, körfubolti – 6
Þjálfari ársins
1. Heimir Hallgrímsson, knattspyrna – 135 stig
2. Þórir Hergeirsson, handbolti – 63
3. Elísabet Gunnarsdóttir, knattspyrna 12
.
6. Finnur Freyr Stefánsson, körfubolti – 4
9. Sverrir Þór Sverrisson, körfubolti – 2




