Lovísa Björt Henningsdóttir leikmaður Marist háskólans hefur lokið keppni á þessu tímabili vegna meiðsla. Þetta staðfesti hún við Karfan.is í gær.
Lovísa fór í aðgerð vegna mjaðmameiðsla sem höfðu plagað hana allt tímabilið strax að loknu síðasta tímabili og var þá frá í nokkra mánuði. Hún sagði að það hafi verið ljóst þá strax að aðgerðin hafi ekki heppnast fullkomlega.
„Það er að eitt af því þrennu sem var verið að laga var komið aftur. Ég ætlaði samt að reyna að spila í gegnum þetta timabil en ég bara gat það ekki lengur, þetta var alltof slæmt. Ég var að taka stanslaust verkjatöflur til að geta spilað en svo var þetta líka farið að hindra mér í daglegu lífi.“ sagði Lovísa í samtali við Karfan.is um meiðslin.
Hún staðfesti við Karfan.is að tímabilið væri þar með búið hjá henni. „Ég þarf að fara í aðra aðgerð 2. janúar og þá á að laga þetta endanlega.“
Lovísa er á sínu þriðja ári hjá Marist en hún hafði leikið tólf leiki fyrir liðið og byrjað tvo. Þar var hún með nærri fjögur stig og þrjú fráköst að meðaltali í leik. Í samtali við Karfan.is var hún hvergi banginn og sagðist vonast til þess að vera búin með meiðsla pakkann eftir þessa aðgerð.




