Dominos deild karla fer aftur af stað eftir bikarhléið í dag. Fjórir leikir fara fram og tveir nágrannaslagir í boði.
Barist verður um Norðurlandið á Akureyri þar sem nýbakaðir bikarmeistarar Tindastóls eru í heimsókn. Fyrri leik liðanna á tímabilinu unnu Sauðkrækingar 92-70 á heimavelli.
Ghetto Hooligans verða bókað í miklu stuði í Breiðholti þegar þeirra lið ÍR fær KR í heimsókn. KR vann fyrri leik liðanna í DHL-höllinni 88-78. KR vann einnig á síðasta tímabili í Hertz-hellinum og er það eitt af fáum heimaleikjum sem ÍR hefur tapað síðustu misserin og því mikið í húfi.
Stjarnan fær Njarðvík í heimsókn í Ásgarð. Fyrri leikinn unnu Njarðvíkingar með tíu stigum en mögulegt er að liðin endi á svipuðum stað í deildinni og því mikilvægt að ná yfirhöndinni í innbirgðisviðureignum liðanna.
Í Þórlákshöfn mæta svo Hafnfirðingar til að leik við Þór. Fyrri leikinni unnu Haukarnir stórt eða 96-64 og því líklegt að Þór vilji hefna þeirra ófara. Þórsarar verða án Halldórs Garðars Hermannssonar sem verður í banni.
Þá fer fram toppslagur 1. deildar karla í Borgarnesi þar sem Breiðablik mætir. Blikar unnu fyrri leik liðanna sannfærandi en leikir þessara liða gætu ráðið úrslitum í deildinni.
Leikir dagsins:
Dominos deild karla:
Þór Akureyri – Tindastóll – kl. 19:15 í beinni á Þór TV
ÍR – KR – kl. 19:15 í beinni á Stöð 2 Sport
Stjarnan – Njarðvík – kl. 19:15
Þór Þ – Haukar – kl. 19:15
1. deild karla:
Skallagrímur – Breiðablik – kl. 19:15




