Lykilleikmaður 16. umferðar Dominos deildar karla var leikmaður Hauka, Kári Jónsson. Á 31 mínútu spilaðri í sigri liðsins á Tindastól skoraði Kári 33 stig, gaf 3 stoðsendingar, stal 4 boltum og fiskaði 9 villur. Í heildina var Kári með 30 framlagsstig fyrir leikinn.
Aðrir tilnefndir voru leikmaður Keflavíkur, Christian Jones, leikmaður Stjörnunnar, Tómas Þórður Hilmarsson og leikmaður Njarðvíkur, Terrell Vinson.
Lykilleikmaður 16. umferðar Dominos deildar karla? #korfubolti
— Karfan.is (@Karfan_is) February 2, 2018




