Fjórir leikir fara fram í Dominos deild karla í kvöld. Leikið er í 19. umferð sem er síðasta umferðin fyrir landsleikjahlé sem tekur við um helgina.
Í Breiðholti eru Akureyringar í heimsókn en ÍR hefur tapað síðustu tveimur heimaleikjum sínum og vilja sjálfsagt snúa því gengi við í kvöld. Á Egilsstöðum freistar botnlið Hattar þess að ná í sigur gegn bikarmeisturum Tindastóls en Höttur vann frækin sigur á Keflavík í Keflavík fyrr í vikunni.
Valsarar fá Þór Þ í heimsókn en Þorlákshafnarmenn hafa verið á góðu skriði uppá síðkastið og þurfa á sigri að halda til að halda í vonina um úrslitakeppnissæti. Stórleikur dagsins er svo í Ásgarði þar sem liðin sem mættust í undanúrslitum á síðasta tímabili mætast aftur. Grindavík sópaði Stjörnunni úr leik á síðasta tímabili og því ljóst að Garðbæingar eiga harma að hefna.
Fallbarátta deildarinnar getur skýrst í kvöld. Fari svo að Höttur tapi leik sínum gegn Tindastól og Valur vinni Þór Þ er ljóst að Höttur er fallið úr Dominos deildinni.
Leiki dagsins má finna hér að neðan en fjallað verður um þá á Karfan.is í kvöld.
Leikir dagsins.
Dominos deild karla:
ÍR – Þór Ak kl 19:15
Stjarnan – Grindavík kl 19:15 (í beinni á Stöð 2 Sport)
Höttur -Tindastóll kl 19:15
Valur – Þór Þ kl 19:15
1. deild karla
Gnúpverjar – ÍA kl 20:30




