Ísland tók á móti Finnlandi í kvöld í undankeppni HM 2019. Ísland leiddi allan fyrri hálfleikinn en Finnar náðu forystunni í þeim þriðja. Magnaður fjórði leikhluti kom Íslandi svo í góða stöðu og náði liðið í geggjaðan 81-76 sigur.
Þetta var fyrsti sigur Íslands í undankeppninni eftir þrjá leiki og jafnar þar með Finnland að stigum. Þar að auki tókst liðinu að hefna ófarana frá síðasta hausti þegar Ísland tapaði súrt gegn Finnlandi í riðlakeppninni.
Martin Hermannsson átti stórkostlegan leik fyrir Ísland. Setti 26 stig og dreif liðið algjörlega áfram í leiknum.
Þetta var fyrri leikurinn af tveimur í þessum landsliðsglugga. Næsti leikur fer fram í Laugardalshöllinni á sunnudag en þá er það Tékkland sem er í heimsókn. Það er einnig síðasti landsliðsleikur Loga Gunnarssonar á ferlinum og því mikilvægt að fjölmenna í höllina. Miðasala er hafin hér.
Myndband af helstu tilþrifum leiksins má finna hér að neðan:




