Ísland tók á móti Tékklandi í dag í undankeppni HM 2019. Ísland leiddi nánast allan leikinn, en Tékkland gerði harða atlögu undir lok leiks. Magnaður var endirinn og frábær sigur Íslands staðreynd.
Þetta var annar sigur Íslands í undankeppninni eftir fjóra leiki og er liðið því enn í færi á að komast áfram í keppninni. Þar að auki tókst liðinu að hefna ófarana frá síðasta nóvember þegar Ísland tapaði stórt gegn Tékklandi ytra.
Martin Hermannsson átti stórkostlegan leik fyrir Ísland. Setti 26 stig og dreif liðið algjörlega áfram í leiknum.
Líkt og vanalega var umræðan á Twitter lífleg á meðan leiknum stóð og ekki minna eftir hann. Það helst má finna hér að neðan:
Great weekend in the books for the Icelandic NT – 2 quality wins from a team of grizzled veterans and young stars all working together, making plays and laying it all on the line and 1 retirement from a legend who leaves the team in good hands . Björt framtíð fyrir þessi lið!
— jshouse (@shousey12) February 25, 2018
Vel gert @kkikarfa til hamingju með þennan glæsilega sigur! Aaaaaðeins of mikil spenna þarna í lokin samt … _x1f604_ #fyririsland https://t.co/gwM3P8xK7N
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) February 25, 2018
Þrátt fyrir fámenna þjóð á Ísland bæði marga frábæra leikmenn í körfubolta og frábært LIÐ sem er ekki síður mikilvægt. Framtíðin er björt en við verðum að vera tilbúin að bæta í, auka þekkingu, umgjörð og aðbúnað leikmanna. Það byrjar í yngri flokkum og yngri landsliðum. #Ísland
— Fridrik Runarsson (@FridrikIngi) February 25, 2018
Þessi gæi súmmerar upp allt það góða við íslenskan körfubolta. Ástríða. Vinnusemi. Fórnfýsi. Geggjaður leikmaður. pic.twitter.com/JmpHObbr9q
— Daníel Rúnarsson (@danielrunars) February 25, 2018
LEIK LOKIÐ! ÍSLAND 76-75 TÉKKLAND #ThisIsMyHouse #korfubolti #FIBAWCQ pic.twitter.com/2CGQLFCGHf
— Karfan.is (@Karfan_is) February 25, 2018
Goat 1.0 og Goat 2.0 #Takeabow
— Gunnlaugur Smárason (@gullismara) February 25, 2018
Vegna fjölda áskorana hefur Martin Hermannsson ákveðið að bjóða upp á framhaldsnámskeið í 4. leikhluta. #WorldCupQualifiers
— Fridrik Runarsson (@FridrikIngi) February 25, 2018
Trey from @hermannsson15 puts Iceland up 14 late in the 4th. #korfubolti #ThisIsMyHouse pic.twitter.com/A9e5ygFVdN
— Hörður Tulinius (@HordurTulinius) February 25, 2018
@hermannsson15 via KO
— Matthías Sigurðarson (@matosig) February 25, 2018
Craig Pedersen er og hefur alltaf verið minn maður #PetersenSvítan
— Hörður S Jónsson (@hoddi23) February 25, 2018
Martin Hermannsson. Vááá. Lítil ástæða til að hafa áhyggjur af framtíð körfuboltalandsliðsins með svona menn innanborðs. #geggjaður
— Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson (@thorkellg) February 25, 2018
Martin, Tryggvi, Haukur – Íslenska liðið er rosalegt með þessa gaura inná á sama tíma #korfubolti #áframÍsland
— Gísli Ólafsson (@GisliOlafs) February 25, 2018
39-32 fyrir okkar mönnum í hálfleik _x1f1ee__x1f1f8_??_x1f3c0_ #korfubolti #ThisIsMyHouse pic.twitter.com/RyXLF0VtMs
— Karfan.is (@Karfan_is) February 25, 2018
2Kings með nýjan þátt á RÚV í sumar sem heitir „Í gegnum glerið“ _x1f603_#AnchorMen #FIBAWCQ pic.twitter.com/VUhQ6fI6TI
— Karfan.is (@Karfan_is) February 25, 2018
Tékkarnir eru svo hræddir við lobbið á Tryggva að það eru sætaferðir upp að körfunni núna.#korfubolti
— Sigurður O. (@SiggiOrr) February 25, 2018
Tryggvi hentar _x1f44f__x1f44f__x1f44f_ #korfubolti
— Davíð Eldur (@davideldur) February 25, 2018
Tryggvi hefur greinilega fengið sér hafragraut í morgun #korfubolti
— Snorri Örn (@snorriorn) February 25, 2018
Tryggvi Snær er svo mikill sonur þjóðarinnar. Höllin sturlaðist þegar hann kom inn á _x1f44f__x1f3fc__x1f525_
— Kristjana Arnarsdóttir (@kristjanaarnars) February 25, 2018
Logi Gunnarsson lýkur keppni fyrir landsliðið í dag eftir glæsilegan 18 ára feril #korfubolti #TakkLogihttps://t.co/vLQSrGjiw8 pic.twitter.com/mjR2GDsHHE
— Karfan.is (@Karfan_is) February 25, 2018




