Jón Arnór Stefánsson hefur ákveðið að leggja landsliðsskóna á hilluna eftir leiki Íslands í undankeppni HM næsta sumar. Þetta staðfesti Jón í spjalli í síðustu útgáfu af Podcasti Karfan.is.
Komandi sumar mun liðið leika síðustu leiki sína í fyrri hluta undankeppni heimsmeistarakeppninnar, þann 29. júní úti í Búlgaríu og 2. júlí í Finnlandi. Leikirnir báðir mikilvægir fyrir Ísland, sem er sem stendur í 2.-3. sæti riðilsins ásamt Finnlandi. Bæði eiga einn sigurleik á Búlgaríu í 4. sætinu, en aðeins þrjú lið komast áfram.
Segir Jón:
"Ég tek þessa leiki í sumar, svo er ég hættur. Það er bara svoleiðis. Ég get droppað því hér"
Ekki er víst hvort liðið mun leika æfingaleiki fyrir þessa tvo leiki, en ef svo verður ekki, verða leikirnir númer 99 og 100 fyrir Jón, en hann lék sinn fyrsta landsleik gegn Noregi árið 2000. Þann leik sigraði Ísland nokkuð örugglega 92-66, en í þeim leik skoraði Jón 9 stig.
Fréttir af brotthvarfi Jóns úr íslenska landsliðinu koma í kjölfarið á síðustu leikjum Loga Gunnarssonar, sem lék sína síðustu landsleiki síðustu helgi, en þeir komu einmitt inn í landsliðið á sama tíma fyrir 18 árum.
Hérna er hægt að lesa meira um fyrsta landsleik Jóns gegn Noregi
Jón hefur í 12 skipti verið valinn körfuknattleiksmaður ársins á Íslandi og í eitt skipti verið valinn íþróttamaður ársins (2014)
Hægt er að hlusta á spjallið við Jón í gegnum iTunes og á Karfan.is




