Hér í eina tíð gengu menn um héruð og háðu einstaka hildi sín í millum og slíkt var uppi á teningnum hjá þeim Kristni Friðrikssyni og Teiti Örlygssyni er þeir áttust við með Reykjanesbæjarliðunum Njarðvík og Keflavík.
Eitthvað hefur samhljómurinn aukist hjá þeim með árunum en báðir hafa arkað fram á veðmálavöllinn fyrir kvöldið og ber saman um að Keflavík muni hafa sigur úr býtum eins og fram kemur hér að neðan í einkasamtali þeirra á Twitter:
Jæja @teitur11 pic.twitter.com/dUewJV5JHD
— Kristinn G. Friðriks (@KiddiGun) February 28, 2018
Vessgú pic.twitter.com/DZBzQs6HhU
— Teitur Örlygsson (@teitur11) February 28, 2018




