HomeFréttirEnn leggja Keflvíkingar granna sína úr Njarðvík

Enn leggja Keflvíkingar granna sína úr Njarðvík

 

Keflavík sigraði Njarðvík með 4 stigum, 87-83, í 20. umferð Dominos deildar karla. Eftir leikinn er Keflavík í 7.-8. sæti deildarinnar ásamt Stjörnunni, en Njarðvík er einum sigurleik á undan í 5.-6. sætinu ásamt Grindavík.

 

Fyrir leik

Fyrri leik liðanna vann Keflavík í upphafi desember með 4 stigum. Í honum var þó um eilítið annað Keflavíkurlið að ræða, en síðan þá hafa þeir skipt út 5 leikmönnum í liði sínu.

 

Í lið Njarðvíkur vantaði Odd Rúnar Kristjánsson í kvöld, en vænta má að hans hafi verið saknað, þar sem að hann spilar venjulega í kringum 25 mínútur í leik fyrir þá.

 

Þá var Keflavík búið að endurheimta annan erlendan leikmann sinn, Dominique Elliot úr þriggja leikja banni.

 

Gangur leiks

Það voru heimamenn í Keflavík sem mættu mun betur stemmdir til leiks í kvöld. Leikstjórnandinn Hörður Axel Vilhjálmsson fór fyrir sínum mönnum, sem sigruðu fyrsta leikhlutann 24-14, þar sem Hörður skoraði 13. Undir lok hálfleiksins ná gestirnir þó að koma sér betur í takt við leikinn, en eru þó 9 stigum undir í hálfleik, 44-35.

 

Fyrir Keflavík var það Hörður sem var atkvæðamestur í fyrri hálfleiknum með 16 stig á meðan að Maciek Baginski skoraði 7 og Logi Gunnarsson 6 fyrir Njarðvík

 

Í upphafi seinni hálfleiksins gera gestirnir svo aftur vel með að koma forystu heimamanna aftur niður í 3 stig, 51-48, en undir lok þriðja leikhlutans bæta Keflvíkingar aftur í og halda fengnum hlut frá hálfleiknum, 9 stiga forystu fyrir lokaleikhlutann, 70-61.

 

Undir lok leiksins nær Njarðvík svo enn og aftur að setja saman áhlaup. Munurinn aðeins 4 stig þegar að 5 mínútur eru eftir, 78-74. Komast næst 3 stigum frá heimamönnum þegar um 8 sekúndur eru eftir, en allt kemur fyrir ekki. Keflavík sigrar að lokum með 4 stigum, 87-83.

 

Villuvandræði

Erlendur leikmaður Njarðvíkur Terrell Vinson komst aldrei almennilega í takt við leik kvöldsins. Fékk sína þriðju villu um miðjan fyrsta leikhluta og átti erfitt uppdráttar það sem eftir var af leik. Klárlega einn besti leikmaður deildarinnar, með krafta sem Njarðvík hefði svo sannarlega geta nýtt sér betur í leik kvöldsins.

 

Kjarninn

Leikur kvöldsins var áhugaverður fyrir þær sakir að Njarðvík kom alltaf til baka. Munurinn aldrei mikill á liðunum þó Keflavík hafi leitt í rúmar 38 mínútur af 40 spiluðum í leiknum. Með smá lukku hefði Njarðvík tekið þennan leik.

 

Tölfræðin lýgur ekki

Keflavík fékk 30 stig af bekk sínum í kvöld á móti aðeins 14 hjá Njarðvík.

 

Hetjan

Hörður Axel Vilhjálmsson var stórkostlegur í liði Keflavíkur í kvöld. Skoraði 21 stig, tók 9 fráköst, gaf 9 stoðsendingar á 36 mínútum spiluðum.

 

Tölfræði leiks

Myndasafn

 

Umfjöllun, viðtöl / Davíð Eldur

Myndir / Skúli Björgvin

 

Viðtöl:

 

 

 

 

 

Fréttir
- Auglýsing -