HomeFréttirArnar með Tindasól á nýjan leik í kvöld

Arnar með Tindasól á nýjan leik í kvöld

 

Bakvörðurinn Arnar Björnsson verður á nýjan leik með sínum mönnum í Tindastól í kvöld þegar að liðið tekur á móti KR í 20. umferð Dominos deildar karla, en hann hafði verið frá síðan í lok janúar vegna álagsmeiðsla.

 

Arnar verið frábær fyrir Tindasól í vetur, skilað þeim 19 stigum, 5 fráköstum og 3 stoðsendingum að meðaltali í 14 leikjum áður en að hann meiddist.

 

Leikur Tindastóls og KR er í Síkinu kl. 20:00 í kvöld, en fyrir þá sem komast ekki norður, þá verður hann í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Fréttir
- Auglýsing -