HomeFréttirTindastóll lagði Íslandsmeistarana með 25 stigum

Tindastóll lagði Íslandsmeistarana með 25 stigum

 

Þrír leikir fóru fram í 20. umferð Dominos deildar karla. Stærstu úrslit kvöldsins komu að norðan, þar sem að Valur vann heimamenn í Þór í spennandi leik. Með sigrinum tryggði Valur sæti sitt í deildinni á næsta ári, en það er í fyrsta skiptið síðan árið 1998 sem að liðið fer ekki beint aftur niður. Þórsarar eru hinsvegar fallnir og munu leika í 1. deildinni á næstu leiktíð.

 

Í Þorlákshöfn sigruðu heimamenn í Þór kanalausa Hattarmenn, en fyrir leikinn var bæði öruggt að Þór kæmist ekki í úrslitakeppnina og að Höttur væri fallnir.

 

Á Sauðárkróki sigruðu heimamenn í Tindastól KR með 25 stigum, 105-80. KR nú búið að tapa þremur leikjum í röð, en það gerðu þeir síðast árið 2012. Þá, líkt og nú, töpuðu þeir fyrir Keflavík og Tindastól, þriðja liðið þá var Snæfell, en Haukar í þetta skiptið.

 

Þá voru tveir leikir í 1. deild karla. Hamar sigraði granna sína úr FSu og á Akranesi töpuðu heimamenn í ÍA fyrir Breiðablik.

 

Staðan í Dominos deildinni

Staðan í 1. deild karla

 

 

Úrslit kvöldsins

 

Dominos deild karla:

 

Þór 94 – 66 Höttur
 

Þór Akureyri 71 – 78 Valur 
 

Tindastóll 105 – 80 KR 
 

 

1. deild karla:

 

ÍA 66 – 140 Breiðablik
 

Hamar 100 – 86 FSu 
 

Fréttir
- Auglýsing -