HomeFréttirBreiðablik heldur í heimavallarvonina

Breiðablik heldur í heimavallarvonina

 

Breiðablik heimsótti í kvöld ÍA á Vesturgötuna á Akrnaesi.  Staða liðana í deildinni fyrir leik var frekar ójöfn, Blikar í harðri baráttu við Hamar og Vestra um sæti sem gefur heimavallar rétt í komandi úrslitakeppni á meðan ÍA situr sem fastast á borni deildarinnar, enn í leit að sínum fyrsta sigri.

 

Jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta en Blikarnir þó alltaf aðeins á undan og undir lok leikhlutans náðu þeir 11 stiga forystu sem þeir létu aldrei af hendi heldur bættu bara í og lokatölur í kvöld 66-140 Breiðablik í vil.

 

Sá leikmaður sem mest fór fyrir inn á vellinum í kvöld hjá heimamönnum var Marcus Dewberry en hann skoraði 25 stig, tók 6 fráköst og 5 stoðsendingar.

Hjá gestunum var Erlendur Ágúst Stefánsson fyrirferða mestur með 25 stig, 4 fráköst og 4 stoðsendingar. Gaman að segja frá því að skotnýting Breiðabliks í leiknum var til fyrirmyndar, 63% í 2ja stiga og 56% í 3ja stiga.

 

Það er því óhætt að segja að baráttan um loka sætaröðun fyrir úrslitakeppnina haldi áfram að vera spennandi.  Næsta verkefni Blika á þeirra leið að heimavallarrétti er heima gegn nýkringdum deildarmeisturum í Skallagrími á meðan ÍA mun halda áfram leitinni að sínum fyrsta sigri á tímabilinu gegn Vestra sem eru einmitt í heimavallarréttarbaráttu við Blika.

 

Tölfræði leiks

 

Umfjöllun / HGH

Fréttir
- Auglýsing -