Leikur Þórs og Þórs úr Þorlákshöfn mun seint eða trúlega aldrei í sögubækurnar út frá skemmtanagildi það verður bara að segjast alveg eins og það er.
Gangur leiks eftir leikhlutum:
17-8 / 18-32 / 22-22 / 13-14
Leikurinn fór afar rólega af stað og fyrsta karfa leiksins kom ekki fyrr en eftir nærri þriggja mínútna leik og það var þriggja stiga karfa sem Emil Karel gerði fyrir gestina. Það var svo ekki fyrr en mínútu síðar að Ingvi Rafn skoraði fyrstu stigin fyrir okkar menn og það var einnig þristur. Eftir tiltölulega jafnar upphafs mínútur sigu heimamenn fram úr og unnu leikhlutann með sjö stigum 17-8.
Heimamönnum gekk illa að finna réttu leiðin að körfu gestanna sem tóku að saxa á forskotið jafnt og þétt og þegar leikhlutinn var hálfnaður höfðu gestirnir jafnað 25-25. Aftur náðu heimamenn forystunni og leiddu með 1-5 stigum allt fram að því að ein og hálf mínúta lifði fyrri hálfleiks þá jöfnuðu gestirnir 31-31 og komust svo yfir 31-33. Eftir þetta létu gestirnir forskotið aldrei af hendi. Þorlákshafnar Þórsarar unnu leikhlutann með 14 stigum og leiddu í hálfleik með fimm stigum 35-40.
Jafnræði var með liðunum fyrstu mínúturnar í þriðja leikhluta og eftir þrjár mínútur var munurinn tvö stig 46-48. En nær komust heimamenn ekki en gestirnir ávallt fetinu á undan og leiddu mest með 7 stigum. Hvort lið skoraði 22 stig og gestirnir leiddu með fimm stigum þegar fjórði leikhlutinn hófst 57-62.
Ekkert gekk upp hjá heimamönnum í fjórða leikhluta og skoruðu þeir aðeins tvö stig fyrstu fimm mínúturnar en þá var munurinn á liðunum komin í þrettán stig 59-72.
Heimamenn náðu ögn að laga stöðuna áður en yfir lauk og náðu að minnka muninn í sex stig en nær komust þeir ekki. Sex stiga tap 70-76 staðreynd.
Eins og kemur fram í upphafi var þessi leikur vægast sagt bragðdaufur og óþarft að fara mörgum orðum um hann en sanngjarn sigur gestanna þegar upp er staðið.
Í liði heimamanna var Nino Johnson stigahæstur með 19 stig og 22 fráköst, Ingvi Rafn og Hilmar Smári voru með 15 stig hvor auk þess tók Ingvi 8 fráköst. Júlíus Orri var með 7 stig og 6 fráköst, Bjarni Rúnar og Sindri Davíðs 4 stig hvor. Þá voru þeir Baldur Örn, Bjarni Rúnar og Ragnar Ágústsson með 2 stig hver.
Hjá Þorlákshafar Þórsurum var Halldór Garðar stigahæstur með 21 stig 5 fráköst og 4 stoðsendingar. Emil Karel var með 19 stig, Chaz Williams 16 stig 9 fráköst og 8 stoðsendingar, Davíð Arnar og Adam Eiður 8 stig hvor og Snorri Hrafnkelsson 4 stig.
Umfjöllun, myndir / Palli Jóh




