HomeFréttirMatthías Orri: Hlustum ekki á spekingana

Matthías Orri: Hlustum ekki á spekingana

 

 

Matthías Orri var ánægður með sigurinn en ekki endilega spilamennskuna:

 

Matti, nú er orðið ,,seiglusigur“ alveg óþolandi frasi en hvað annað er hægt að kalla þetta?

 

Ég skal koma með nýjan frasa handa þér, það er ,,Ghetto-sigur“! Að sigra með því að skora 64 stig er Ghetto-sigur!

 

Já þakka þér fyrir! Þá er komin fyrirsögn á pistilinn. En það er ekki hægt að segja að þið hafið verið að spila neitt sérstaklega vel sóknarlega, þetta var agalegt ströggl og þið voruð í miklum vandræðum með að finna svör við Haukavörninni. Þið hljótið að hafa kannski smá áhyggjur af því þó sigur hafi verið niðurstaðan?

 

Já, við höfum bara verið að hitta hrikalega illa síðustu 2-3 leiki en þá vorum að vísu að fá ágætis skot. Mér fannst við ekki vera að búa okkur til skot í dag. Þetta byrjaði nú vel en svo fjaraði undan þessu. Það er hundleiðinlegt því mér fannst við eiga að geta gert betur á móti þessari svokölluðu drop-vörn. Þetta gekk vel í byrjun þegar Ryan var að bíða fyrir utan þriggja stiga línuna og fékk galopin skot en svo hætti hann að hitta og þá varð þetta svolítið þreytt hjá okkur. Við hefðum þurft að finna einhver betri svör. Við erum nokkrir lykilmenn í liðinu sem náum varla 10 stigum, ekki útaf því að við skjótum ekki heldur vegna þess að við hittum ekki. Við vorum samt sem áður að spila góða vörn og við tökum sigrinum en við þurfum að skoða hvernig við spilum gegn því varnarafbrigði  sem Haukarnir voru að henda á okkur í dag.

 

Einmitt, nú er deildarmeistaratitillinn úr myndinni en þið voruð kannski meira að horfa á það að komast upp fyrir Stólana og ná öðru sætinu?

 

Já, það er a.m.k. fínt markmið núna. Upprunalega markmiðið okkar var topp 4 og við erum alltaf að breyta markmiðunum okkar. Við ætluðum okkur deildarmeistaratitilinn en við klúðruðum því í raun í Grindavík þar sem við vorum með leikinn í okkar höndum. Sá leikur var hálfgerð spegilmynd af þessum leik, í kvöld gátum við ekki neitt og hittum ekki neitt í þrjá leikhluta en unnum samt – töpuðum í Grindavík þar sem við spiluðum bara eins og San Antonio Spurs fyrir tveimur árum síðan fyrstu þrjá leikhlutana, allir voru að skora og flæðið var gott. Við þurfum að finna einhvern balance andlega til að ná að láta boltann rúlla nógu vel og þá gerast góðir hlutir. En næsta markmið hlýtur að vera að vinna í Keflavík og ná vonandi öðru sætinu og þá fáum við heimaleikjarétt í annarri umferð úrslitakeppninnar. Það yrði alveg frábært.

 

Ég spurði þig að því eftir um 8 leiki á tímabilinu hvert markmiðið væri hjá ÍR í vetur og þú svaraðir því til að það væri að ná einu af topp 4 sætunum. Þeir í Körfuboltakvöldi hlógu nú hreinlega að því markmiði þá! Nú er þessu markmiði náð, viltu koma með eitthvað komment á þetta?

 

Nja, neinei…þeir eru bara að reyna að búa til sjónvarp, Kiddi kjaftur og þeir þarna…Hemmi og Fannar. En mér finnst við klárlega vera lið sem á skilið að vera í topp 4, við höfum sýnt það í allan vetur. Við höfum mest tapað tveimur leikjum í röð og ef við lendum í smá ströggli þá rífum við okkur alltaf upp úr því. Það er mikil seigla í okkar liði og barátta. Til að segja eitthvað um þetta þá var upprunalega spáin frá spekingunum mjög skrýtin þar sem við höldum sama liði og okkur gekk vel seinni part síðasta tímabils. En þetta er bara svona hávaði í eyrunum á okkur sem fer inn um annað og út um hitt! Ég held að spekingarnir hafi enn litla trú á okkur og ef við ætlum að hlusta eitthvað á þá verður okkur hent út strax í fyrstu umferð. 

 

Já, akkúrat, en það er allavega veisla og fjör framundan!

 

Algjörlega, getum ekki beðið eftir þessu!

 

Viðtal / Kári Viðarsson.

Fréttir
- Auglýsing -