Átta leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Úrslitin í þeim að mestu eftir bókinni, fyrir utan sigur Dallas Mavericks á Denver Nuggets. Dallas eitt allra lélegasta lið deildarinnar með sigur sem skiptir þá litlu máli, á meðan að tapið var rándýrt fyrir Denver, sem er sem stendur í blóðugri baráttu um sæti í úrslitakeppninni.
Í Chesapeake Energy Arena í Oklahoma lágu heimamenn í City Thunder fyrir toppliði Houston Rockets. Houston verið afar sigursælt síðustu vikurnar og var sigrinn sá sextándi í röð fyrir þá. Chris Paul stigahæstur fyrir Rockets með 25 stig á meðan að fyrir heimamenn var það verðmætasti leikmaður síðasta tímabils, Russell Westbrook, sem dróg vagninn með 32 stigum.
Philadelphia 76ers 128 – 114 Charlotte Hornets
Atlanta Hawks 90 – 106 Toronto Raptors
Miami Heat 113 – 117 Washington Wizards
Houston Rockets 122 – 112 Oklahoma City Thunder
Denver Nuggets 107 – 118 Dallas Mavericks
New York Knicks 87 – 111 Portland Trail Blazers
Brooklyn Nets 101 – 114 Golden State Warriors
New Orleans Pelicans 121 – 116 LA Clippers




