Rétt í þessu lauk 23. umferð Dominos deildar kvenna með þremur leikjum. Eftir kvöldið í kvöld eru einungis fimm umferðir eftir af deildarkeppninni og því ýmislegt sem skýrðist eftir leiki kvöldsins.
Í Njarðvík var toppliðið i heimsókn. Þrátt fyrir hetjulega baráttu botnliðs Njarðvíkur voru Haukar einfaldlega of stórt númer í kvöld.
Stjarnan endurheimti fjórða sæti deildarinnar og síðasta sætið í úrslitakeppnina þegar liðið sótti sigur í Smárann gegn Breiðablik. Skallagrímur var í fjórða sætinu fyrir leikinn en liðið lék í þessari umferð síðasta sunnudag.
Stórleikur kvöldsins var svo í Valshöll þar sem þýðingarmikill leikur um heimaleikjarétt í úrslitakeppninni fór fram. Valsarar unnu mikilvægan sigur á Keflavík en liðið þurfti að vinna með meira en 10 stigum til að ná yfirhöndinni í innbyrðisviðureign liðanna og það tókst að lokum.
Úrslit kvöldsins:
Dominos deild kvenna:
1. deild kvenna:




