HomeFréttirSíðast þegar Valur hélt sæti sínu í deildinni

Síðast þegar Valur hélt sæti sínu í deildinni

 

Í kvöld klárast deildarkeppni Dominos deildarinnar tímabilið 2017-18. Merkilegt tímabil fyrir margar sakir. Ekki síst þær að Valur heldur sæti sínu í deildinni eftir að hafa komið upp úr 1. deildinni fyrir tímabilið. Sem stendur er liðið í 10. sæti deildarinnar, með 14 stig eftir 21 leik spilaðan, heilum 8 stigum frá fallsæti og var það öruggt með sæti sitt á komandi leiktíð fyrir nokkrum umferðum.

 

Um afrek að ræða fyrir félagið, sem ekki hefur haldið sæti sínu í deildinni (eftir að hafa komið upp) síðan árið 1998. Það árið, líkt og nú, hélt liðið sér uppi, en komst þó ekki í úrslitakeppnina.

 

 

 

Vert er að skoða hversu mikill tími er liðinn síðan, en á þeim tíma sem þetta átti sér stað síðast var það Svali Björgvinsson sem þjálfaði liðið og meðal annarra var Ívar Webster ennþá leikmaður. Núverandi þjálfari þeirra, Ágúst Björgvinsson, starfaði það árið sem þjálfari 7. og 8. flokks félagsins.

 

 

Hérna má sjá skemmtilegt viðtal við Svala úr Valsblaði ársins 1998.

 

Hér fyrir neðan má sjá nokkra aðra áhugaverða hluti sem einnig voru í umræðunni þegar að Valur hélt sæti sínu síðast í deildinni:

 

Þessi útgáfa af iMac var vinsæl

 

Titanic vann til 11 Óskarsverðlauna

 

Hvalfjarðargöngin voru opnuð

 

TQ gaf út smáskífuna Westside

 

Keikó flutti til Vestmannaeyja

 

Davíð Oddsson var forsætisráðherra

 

Playstation var ennþá á sinni fyrstu útgáfu

 

 

 

Urald King var 7 ára

 

 

Fréttir
- Auglýsing -