Síðasta umferðin í 1. deild karla fer fram annað kvöld (9. mars) . Ljóst er að Skallagrímur hefur tryggt sér titilinn í deildinni og mun leika í deild þeirra bestu á næsta tímabili.
Borgnesingar fara því í snemmbúið sumarfrí þetta tímabilið en í þetta skiptið er það góðs viti fyrir liðið. Síðasti leikur liðsins fer fram annað kvöld þegar liðið fær Vestra í heimsókn. Vestri vann Skallagrím á Ísafirði fyrr á árinu og hafa því borgnesingar harma að hefna.
Samkvæmt forsvarsmönnum Skallagríms er von á hátíð á morgun þegar bikarnum verður lyft. Frítt er inn á leikinn í boði stuðningaðila og eru Borgnesingar nær og fjær kallaðir út fyrir þennan mikilvæga leik. Fjósamenn hafa lofað að fjölmenna og ætlast til þess að allir taki undir með þeim í söng og stuðning.
Körfunni barst tilkynning á dögunum þar sem leitað var til stuðningsmanna liðsins að fjölmenna í Fjósið og má finna hana hér að neðan:
Áríðandi tilkynning ! ! ! ! !
Þá er komið að því… Það verður hátíð í bæ, nánar til tekið í Fjósinu á föstudaginn þegar meistaraflokkur karla spilar sinn síðasta leik í 1. deildinni, gegn Vestra. Eftir leikinn fer bikarinn á loft og Skallagrímsmenn verða krýndir deildarmeistarar. Við hvetjum alla til að mæta á pallana og láta vel í sér heyra og búa til magnaða stemmingu.
Skallagrímur hefur staðið sig með prýði í deildinni í vetur undir stjórn Finns Jónssonar og einungis tapað 3 leikjum og eru með 6 stiga forystu á toppnum fyrir lokaumferðina, búnir að tryggja sér sigur í deildinni þegar tvær umferðir voru eftir. Það hefur verið virkilega gaman að fylgjast með liðinu í vetur þar sem kjarninn eru ungir heimamenn sem hafa fyllilega staðið fyrir sínu í vetur, sem sýnir að framtíðin er björt hjá Skallagrími.
Það verður frítt inn á leikinn í boði stuðningsaðila körfuknattleiksdeildarinnar og því ekkert annað í boði en að fylla Fjósið. Krakkar úr yngriflokkastarfi Skallagríms munu standa heiðursvörð meðan liðin verða kynnt til leiks, eins verður boðið uppá miðjuskot fyrir þá sem grípa boltana sem er hent upp í stúku,
Fjósamenn munu mæta á svæðið og trylla stemmninguna í stúkunni. Á boðstólum verða rjúkandi pítsur og gos frá Grillhúsinu á tilboði, fyrir leik og fram í hálfleik, meðan birgðir endast.





