HomeFréttirÞessi lið mætast í átta liða úrslitum

Þessi lið mætast í átta liða úrslitum

Lokaumferð Dominos deildar karla fór fram í kvöld. Óljóst var fyrir kvöldið hvort það yrðu Haukar eða ÍR sem myndu hampa deildameistaratitlinum. Fór svo að Haukar sigruðu sinn leik og skipti sigur ÍR því ekki máli. Haukar því deildarmeistarar þetta tímabilið, í fyrsta skipti í sögu félagsins.

 

Eftir kvöldið er einnig ljóst hvaða lið það eru sem mætast í átta liða úrslitum Dominos deildarinnar. Það slær hvergi slöku við en allar viðureignir þessarar umferðar eru ansi spennandi. 

 

Úrslitakeppnin hefst næstkomandi fimmtudag (15. mars) en nánari leikjaröðun liggur ekki fyrir. 

 

Viðureignir 8. liða úrslitanna eru eftirfarandi: 

 

Haukar (1) – Keflavík (8)

ÍR (2) – Stjarnan (7)

Tindastóll (3) – Grindavík (6)

KR (4) – Njarðvík (5

 
Fréttir
- Auglýsing -