ÍA og FSu mættust í kvöld á Akranesi í síðasta leik sínum á tímabilinu. Liðin voru bæði að klára vonbrigða tímabil en liðin sitja í tveimur neðstu sætum deildarinnar.
Hápunktur leiksins var þegar Jón Orri Kristjánsson hjá ÍA var kvaddur með virtum og honum þakkað fyrir framlag sitt til körfuboltans á Íslandi innan vallar. Einnig ákvað Björn Steinar Brynjólfsson, leikmaður ÍA, eftir leikinn að þetta væri hans síðasti leikur. Það er því ljóst að það verður breytt ÍA lið sem mætir til leiks á næsta tímabili.
Einnig vakti athygli að ÍA lék án Marcus Dewberry en ekki er vitað hvar hann er niður kominn en skagamenn vonast til að hann sé í góðum höndum og kominn til síns heima þrátt fyrir að hann hafi hvorki kvatt kóng né prest, hvað þá liðsfélga sína, þjálfara eða aðra hjá félaginu.
Leikur kvöldsins var nokkuð flatur en hvorugt liðið hafði að neinu að keppa, nema þá kannski heimamenn sem vildu klára tímabilið með einum sigri. Það tókst þó ekki og lokatölur í kvöld 43 – 65. Lítið skorað og lokatölurnar í raun ágætis hálfleiks tölur en löka tölur voru það.
Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik gekk heimamönnum ekkert að skora og því fór sem fór hjá þeim.
Sigahæstur á vellinum var Antowine Lamb hjá FSu með 18 stig auk þess að taka 15 fráköst. Hjá ÍA var Björn Steinar stigahæstur með 11 stig auk þess að taka 12 fráköst.
Nánari tölfræði úr leiknum má nálgast hér: http://www.fibalivestats.com/u/KKI/629134/
Það má með sanni segja að það sé ákveðinn léttir hjá báðum liðum að þetta erfiða tímbil þeirra sé nú búið og liðin geta farið að láta sig hlakka til næsta tímabil þar sem liðin byrja með hreint borð.
Texti: HGH
Mynd: Ingimar Elfar Ágústsson
-Jón Orri kvaddur í kvöld en það var Erna Guðrún dóttir hans sem afhenti honum þakkargjöf frá ÍA fyrir vel unnin störf




