Ívar Ásgríms var að vonum léttur að leikslokum:
Innilega til hamingju með titilinn!
Takk fyrir!
Nú var þessi leikur ekki beint mjög spennandi eða skemmtilegur, en þér er væntanlega alveg slétt sama um það?
Sigur var auðvitað það sem skipti öllu máli núna og ekkert annað. Við vorum kannski svolítið ragir við að taka sénsa, ragir sóknarlega og töpuðum fullt af boltum í þessum leik. En vörnin okkar var góð eins og yfirleitt alltaf og við vorum að vinna á því og svo skilaði breiddin sínu.
Þið hittuð ekki mjög vel frekar en í Hellinum í síðasta leik – en vörnin var það sem gerði þetta í raun öruggt allan tímann?
Já, ég myndi segja það. Vörnin var frábær mestallan tímann. Valsmenn eru vel þjálfaðir og þeir spila á sína styrkleika, lagnir við að finna sína sterkustu menn sem eru Bracey og King. Gústi hefur gert vel að láta liðið spila þannig að þeir finni sína menn. Um leið og við slökuðum eitthvað á þá voru þeir komnir í bakið á okkur, en við héldum haus og það var mjög mikilvægt.
Einmitt. Þá er það bara úrslitakeppnin framundan og þið fáið Keflavík í fyrstu umferð. Hvernig leggst það í þig?
Mér líst bara vel á það. Við vissum að alveg sama á móti hverjum við lendum þá yrði það alltaf gríðarlega erfitt. Keflavík er mjög gott lið. Við erum ekki sammála varaformanninum um að þeir séu aumingjar, við teljum að Keflavík sé með gott lið. Við þurfum að undirbúa okkur vel fyrir þá leiki. Liðið er með mjög góðan þjálfara sem veit alveg um hvað þetta snýst. Við þurfum að koma 100% í leikjunum gegn þeim.
Já, Keflavík hefur auðvitað gríðarlega sögu og alveg út í hött að ætla að vanmeta þá eitthvað?
Ef þú vanmetur Keflavík þá dettur þú bara út! Það er einfalt. Við þurfum að koma grimmir til leiks og ætla okkur að klára þetta.
Akkúrat. Þið hljótið bara að vera spenntir og glaðir og hlakkið til að hefja leik í úrslitakeppninni?
Jájá! Við erum gríðarlega ánægðir með að vinna þennan erfiða titil sem deildarmeistaratitillinn er. Það þarf að vera með gott lið til að vinna þennan titil. Þannig að við erum í hæstu hæðum í dag en þurfum þó að vera fljótir að ná okkur niður.
Viðtal / Kári Viðarsson




