Næstu mánuði munum við kynna fyrir ykkur skó mánaðarins að mati körfuboltaverslunarinnar Miðherja.

Fyrstu skórnir fyrir valinu voru skórnir Adidas Harden B/E, en þeir eru til hjá Miðherja í þremur litum eins og staðan er í dag og er margt fleira spennandi frá Adidas á leiðinni.

Adidas Harden B/E eru þróaðir í samvinnu við James Harden leikmann Houston Rockets í NBA og eru þessir skór svokölluð basic edition útgáfa. Skórnir eru með bounce foam botni sem er ódýrari en boost botninn. Skórnir hafa þó fengið mikið lof fyrir að vera gæðamiklir á góðu verði sem gefa dýrari boost skónum lítið eftir.
Dómur:
Skoðaðu litina í boði:
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Miðherja




