HomeFréttirHúrra fyrir Skallagrím!!

Húrra fyrir Skallagrím!!

 

Skallagrímur tóka á móti Vestra á fjölum Fjósins í kvöld. Vestra menn byrjuðu vel og voru að gera gott mót. En Skallagrímur tók nokkur af þessum frægu hlaupum, jú áhlaupum, og kláruðu leikinn nokkuð örugglega 115-93.

 

Molar fyrir leik:

 

Byrjunarlið Skallagríms: Aaron-Eyjó-Flake-Kristó-Bjarni.

 

Bjarni Guðman”Godman” mætti í jakkafötum en engin annar liðsfélagi gerði hið sama.

 

Byrjunarlið Vestra: Nebojsa-Björn-Ingimar-Nökkvi-Adam.

 

Darrell Flake leikur sinn 550.000 leik á sínum ferli.

 

Jói “Skalli” Waage var mættur í Fjósið.

 

Vestri var eins og staðan var fyrir leik, í þriðja sæti deildarinnar.

 

Baskinn var komin í nýja peysu. Keypt í Borgarsport hér í Borgarnesi. Útsalan var í gær.

 

Fjölmenni komið í Fjósið. Frítt inn, pizza og kók á tilboði og algjör bóbó blíða.

 

“Dr.Feelgood” með Mötley Crue var loka lag upphitunar. Geggjað lag!!!

 

Dómarar leiksins voru þeir Halldór Geir Jensson og Friðrik Árnason.

 

1.leikhluti.

 

Bæði lið byrjuðu í svæðis pressu og vörn. Vestra menn voru grimmir í sínum varnarleik og voru ekki að leyfa mikla umferð í teignum hjá cher. Hjá Skallagrím voru það stökkskot og aftur stökkskot sem voru hífð upp. Vestra piltar grimmari í fyrsta leikhluta og leiddu 21-24.

 

 

2.leikhluti.

 

Skallagrímur byrjaði af þvílíkum krafti og náðu þessu líka fína áhlaupi, 16-2, á fimm mín kafla. Staðan allt í einu orðin 37-26. En Skallagrímur slakaði vel á varnarleiknum og Vestri komst inn í leikinn. Vestri náði að opna fyrir skyttur liðsins og komst stemmingin yfir til þeirra. Vestri kláraði fyrri hálfleik með sínu eigin hlaupi, 14-18 og gengu leikmenn til búningsklefa í stöðunni, 51-44.

 

3.leikhluti.

 

Liðin byrjuðu að skiptast á körfum en alltaf var Skallagrímur við stýrið. Liðin voru að hitta vel fyrir utan og var á tímabili skotsýning milli Ingimars hjá Vestra og Kristó og Davíðs hjá Skallagrím. Skallagrímur hélt forystunni fyrir loka leikhlutan, 86-71.

 

4.leikhluti.

 

Í byrjun leikhlutans gerðu Vestra menn strang heiðarlega tilraun til að koma með hlaup en Skallagrímur setti í þriðja gír. Komu muninum í 20 stig þegar leikhlutinn var hálfnaður og þá fengu ungu og efnilegir leikmenn að leika lausum hala. Skallagrímur kláraði leikinn, 115-93.

 

Skallagrímur komnir upp í efstu deild. Spiluðu góðan bolta í allan vetur og eru komnir í sumarfrí, þann 9.mars.

 

Leikmenn Skallagríms eru flest allir heimamenn og hafa þeir fengið góða reynslu í vetur. Eyjólfur hefur verið frábær í vetur og Flake hefur komið mörgum á óvart með  flottri spilamennsku. Kristófer hefur verið flottur í allan vetur, sem og Bjarni Guðmann og þeir Davíð, Kristján og Hjalti hafa allir verið góðir í vetur. Fleiri ungir leikmenn eru að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokks búning og er það fyrsta atriði stjórnar Skallagríms að reyna að halda í alla þessa leikmenn sem og athuga hvort að Flake hafi eitt tímabil en tankinum.

 

Vestra menn bíða nú úrslitakeppni. Mæta þar Breiðablik í fyrstu umferð og verður það afar áhugaverð sería. Úrslitarkeppnin í ár verður mjög fróðleg.

 

UPP OG ÁFRAM!!!!eeeeeenn og eru ungir engir en geru ungir en genn að leika lausum hala. Skallagrhlaup en Skallagrvarar, 90-76. Kristkot, 77-62.

 

Myndasafn

Tölfræði leiks

 

Umfjöllun, viðtöl / Hafþór Ingi 

Myndir / Ómar Örn

 

Viðtöl:

 

 

Fréttir
- Auglýsing -