HomeFréttirÞórssigur á Fjölni í baráttuleik

Þórssigur á Fjölni í baráttuleik

 

Þórsarar sigruðu lið Fjölnis í kvöld þegar liðin mættust í Síðuskóla en liðin mætast aftur á morgun, laugardag sem er jafnframt síðasti leikur liðanna í deildinni. Lokatölur í kvöld urðu 71-64 Þórsarar leiddu í hálfleik með 8 stigum 38-30.

 

Leikurinn fór rólega af stað en í stöðunni 4-4 tóku gestirnir mikinn kipp og virtust ætla taka leikinn í sýnar hendur og þegar um tvær mínútur voru eftir að fyrsta leikhluta leiddi Fjölnir með 9 stigum 9-18. En þá vöknuðu Þórsarar upp af værum blundi og tóku 10-1 rispu og þegar fyrsta leikhluta lauk var staðan jöfn 19-19. 

 

Jafnræði var með liðunum framan af öðrum leikhluta en í stöðunni 26-25 kom þéttu Þórsstúlkur vörnina og sáu til þess að gestirnir næðu ekki að skora nema 5 stig síðustu sjö mínúturnar leikhlutans. Þór vann leikhlutann 19-11 og leiddu í hálfleik með 8 stigum 38-30. 

 

Þór skoraði fyrstu stigin í síðari hálfleik og náði þar strax 10 stiga forskoti 40-30. Í þessari stöðu gerðust heimakonur heldur værukærar og slökuðu á í vörninni og það nýttu gestirnir sér og um miðjan leikhlutann var munurinn komin niður í tvö stig 44-42. Þegar um ein mínúta lifði leikhlutans hafði Þór komið muninum í 6 stig 57-51 en gestirnir lokuðu leikhlutanum 0-4 og munurinn á liðunum aðeins 2 stig þegar þriðja leikhluta lauk. Fjölnir vann leikhlutann 19-25 og staðan 57-55 þegar lokaspretturinn hófst. 

 

Þórsliðið hafði nokkuð góð tök á leiknum í fjórða leikhluta og þótt gestirnir næðu af og til að koma muninum niður í 2-3 stig bættu Þórsstúlkur í og juku muninn aftur upp í 5-7 stig. Þórsarar unnu leikhlutann 14-9 og lokatölur leiksins urðu 71-64 og verður að teljast sanngjarn sigur þegar upp er staðið.

 

Heiða Hlín átti frábæran leik í kvöld og var stigahæst með 18 stig 6 fráköst 3 stoðsendingar og 4 varða bolta. Unnur Lára kom næst með 16 stig 10 fráköst og 5 stoðsendingar, Rut Herner var með 14 stig og 5 fráköst, Sædís skoraði 10 stig og var með 5 fráköst, Magdalena var 6 stig 7 fráköst og 4 stoðsendingar, Gréta Rún var með 3 stig og Kristín Halla 2. Þá léku þær einnig Særós og Karen Lind þótt ekki næðu þær að skora en skiluðu sýnu. 

 

Í liði Fjölnis var Aníka Linda stigahæst með 18 stig og 10 fráköst, Margrét Ósk 15 stig og 5 fráköst, Berglind Karen 13 stig 5 fráköst og 4 stoðsendingar, Svala Sigurðar 7 stig, Margrét Eiríks og Fanndís María 4 stig hvor og Erla Sif 2 stig og 6 fráköst.

 

Eftir leik kvöldsins er Fjölnir sem fyrr í öðru sætinu með 34 stig og Þór er í þriðja sætinu með 30 stig.

 

Liðin mætast svo aftur á morgun, laugardag og hefst leikurinn klukkan 12:30

 

Tölfræði leiks 

 

Staðan í deildinni 

 

Myndir úr leiknum: Palli Jóh 

Fréttir
- Auglýsing -