Lykilleikmaður lokaumferðar Dominos deildar karla var leikmaður Hauka, Haukur Óskarsson. Í sigri hans manna á Val, sem tryggði liðinu deildarmeistaratitilinn, skoraði Haukur 12 stig, tók 10 fráköst, gaf 3 stoðsendingar og stal 3 boltum. Haukur einkar skilvirkur í leiknum, en í heildina skilaði hann 21 framlagsstigi í leiknum.
Aðrir tilnefndir voru leikmaður ÍR, Ryan Taylor, leikmaður Grindavíkur, Dagur Kár Jónsson og leikmaður KR, Kristófer Acox.
Lykilleikmaður 22. umferðar Dominos deildar karla? #korfubolti
— Karfan.is (@Karfan_is) March 8, 2018



