Í kvöld kl. 19:15 munu ÍR-ingar taka á móti Stjörnunni í fyrsta leik 8 liða úrslitakeppninnar. ÍR endaði í 2. sæti deildarkeppninnar á meðan að Stjarnan var í því 7. Liðin mættust í tvö skipti á tímabilinu og skiptu með sér sigrunum. Stjarnan sigraði leikinn í Breiðholti og ÍR þann í Garðabæ.
Þessi sömu lið mættust í úrslitakeppninni í fyrra, en þá hafði Stjarnan öruggan 3-0 sigur. Sú úrslitakeppni var sú fyrsta sem að þjálfari ÍR, Borce Ilievski, tók þátt í og fær hann því kjörið tækifæri til að kvitta fyrir þann ósigur.
Karfan spjallaði við Borce um tímabilið, úrslitakeppnina og möguleika ÍR gegn Stjörnunni í 8 liða úrslitunum.




