Borche Ilievskii þjálfari ÍR var ánægður með að landa sigri gegn Stjörnunni í leik þrjú í einvígi liðanna í Dominos deild karla. Staðan eftir leikinn er 2-1 fyrir ÍR og geta þeir sent Stjörnuna í sumarfrí með sigri á sunnudag. Hrafn þjálfari Stjörnunnar vildi sjá Ryan Taylor leikmann ÍR fá brottvísun snemma leiks þegar hann virtist henda Hlyn Bæringssyni í gólfið og var mikið af umtöluðum atvikum í leiknum og eftir hann.
Viðtal við Borche má finna í heild sinni hér að neðan:




