HomeFréttirFara Grindavík og Keflavík í sumarfrí í kvöld?

Fara Grindavík og Keflavík í sumarfrí í kvöld?

Leikir þrjú í einvígum átta liða úrslita Dominos deildar karla lýkur í kvöld. Tvö lið geta tryggt sér sæti í undanúrslitum deildarinnar og því ansi mikilvægir leikir framundan. 

 

Á Sauðárkróki geta bikarmeistararnir komist áfram með sigri á Grindavík. Síðasti leikur liðanna á króknum var hnífjafn og réðst ekki fyrr en í framlengingu. Aftur á móti var leikur tvö í Grindavík ójafn er Tindastóll nánast valtaði yfir heimamenn. 

 

Í Hafnarfirði koma bæði lið enn í léttu sjokki eftir sigurkörfu Kára Jónssonar frá síðasta leik. Keflavík getur farið í ansi snemmbúið sumarfrí í kvöld tapi liðið fyrir deildarmeisturunum. Keflavík aftur á móti getur orðið fyrsta liðið í sjö ár sem vinnur leik sem áttunda lið í úrslitakeppninni með sigri.

 

Ljóst er að í báðum einvígum kvöldsins verður ekkert gefið eftir og barist til síðasta blóðdropa. Fari svo að bæði Grindavík og Keflavík falli úr yrði það í fyrsta sinn í sögu úrslitakeppninnar sem ekkert suðurnesja lið er í undanúrslotum. En Njarðvík féll úr leik í gærkvöldi gegn KR.

 

 Einnig er leikið í undanúrslitaeinvígjum 1. deildar karla og kvenna þar sem spennan er að ná hámarki. 

 

 

Fjallað verður um leiki kvöldsins á Karfan.is auk þess sem viðtöl við leikmenn og þjálfara eftir leik fylgja með. Fylgist með! 

 

 

Leikir dagsins: 

 

Dominos deild karla:

Haukar-Keflavík kl 19:15 (Í beinni á Stöð 2 Sport)

Staðan í einvíginu: 2-0.

 

Tindastóll-Grindavík kl 19:15 (Í beinni á Tindastóll TV)

Staðan í einvíginu: 2-0

 

1. deild kvenna: 

Þór Ak-Fjölnir kl  19:30 (í beinni á Thorsport.is)

Staðan í einvíginu: 1-2

1. deild karla

Hamar-Snæfell kl 19:15 (Í beinni á Hamar Tíví)

Staðan í einvíginu 2-0

 

Fréttir
- Auglýsing -