HomeFréttirAga- og úrskurðarnefnd fundar um brot Taylor

Aga- og úrskurðarnefnd fundar um brot Taylor

 

Aga- og úrskurðarnefnd mun funda um brot leikmanns ÍR Ryan Taylor á Hlyni Bæringssyni. Þetta staðfesti formaður KKÍ, Hannes S. Jónsson við Fréttablaðið í morgun. 

 

Upphaflega hafði verið dæmd tæknivilla á Taylor í leiknum, en eins og sjá má af upptöku af brotinu er mögulegt að frekari refsingu sé að vænta.

 

Segir Hannes að dómaranefndin hafi skoðað atvikið og tekið þá ákvörðun í framhaldinu að bera það fyrir aga- og úrskurðarnefndina. Mun nefndin fara yfir þetta á næsta sólahring, en niðurstaða mun liggja fyrir á morgun.

 

Næsti leikur Stjörnunnar og ÍR er í Ásgarði á sunnudaginn. Fyrir hann leiðir ÍR einvígið 2-1 og þurfa þeir því aðeins einn sigur í viðbót til þess að komast áfram og í undanúrslitin.

 

Ljóst að fari Taylor í bann verði róðurinn erfiður fyrir Breiðhyltinga, en hann hefur í 25 leikjum með liðinu í vetur skilað 21 stigi, 10 fráköstum og 3 stoðsendingum að meðaltali í leik.

 

 

Hér má sjá upptöku af atvikinu:

 

Fréttir
- Auglýsing -