HomeFréttirHelgi Magnússon aftur í KR

Helgi Magnússon aftur í KR

 

Fyrrum landsliðsmaðurinn Helgi Magnússon mun leika með KR það sem eftir lifir af úrslitakeppninni. Þetta staðfestir Böðvar Guðjónsson í samtali við Körfuna í morgun. Segir hann að ákvörðun þeirra um að leita til Helga hafi verið tekin eftir leik liðsins gegn Njarðvík í gær og að Helgi verði kominn til móts við liðið komandi þriðjudag.

 

Leikmannahópur KR gengið í gegnum mikil meiðsli það sem af er vetri. Fyrir úrslitakeppnina brotnaði fyrirliði þeirra, Brynjar Þór Björnsson á hönd og nú í gær meiddist Jón Arnór Stefánsson á nára, en það eru meiðsl sem að héldu honum frá keppni allan fyrri hluta vetrar. Segir Böðvar að ekkert sé enn komið í ljós með hversu alvarleg meiðs Jóns séu í þetta skiptið, en hann fari í myndatöku í dag.

 

Enn frekar segir Böðvar að þetta sé engin óskastaða fyrir félagið, en gott sé að geta leitað til uppaldra KR-inga og að hann sé viss um að Helgi komi með gott flæði inn í liðið.

 

Á 18 ára feril sínum lék Helgi aðeins með KR á Íslandi, en þá var hann einnig hjá BC Boncourt í Sviss árið 2006-07 og síðar Solna Vikings, Uppsala Basket og 08 Stockholm í Svíþjóð árin 2009-12. Helgi lék síðast með KR árið 2016 áður en að hann lagði skóna á hilluna.

 

 

Fréttir
- Auglýsing -