KR tryggði sér í gær sæti í undanúrslitum Dominos deildarinnar með sigri á Njarðvík í þriðja leik liðanna. Tekur nú við nokkurra daga bið fyrir liðið, en ekki er enn ljóst hver mótherji þeirra í undanúrslitunum verður.
Líkt og margir sáu náði leikmaður þeirra, Jón Arnór Stefánsson ekki að ljúka leik í gær og er enn óvitað hver þátttaka hans verður í framhaldinu. Fyrir var fyrirliði þeirra, Brynjar Þór Björnsson brotinn á hendi, en þetta tímabil í heildina hefur verið erfiðara heldur en þau síðustu, þar sem að margir þeirra lykilmanna hafa misst af mörgum leikjum í vetur.
Fréttir dagsins í dag hjá liðinu þó þær að kallað hefur verið á fyrrum landsliðsmanninn Helga Már Magnússon frá Bandaríkjunum til þess að klára tímabilið með þeim. Karfan spjallaði við þjálfara KR, Finn Frey Stefánsson um ástand manna, það að fá Helga til baka og skot leikmanns Hauka, Finns Atla Magnússonar á félagið.
Nú sáu flestir að Jón lauk ekki leik í gær, hvers eðlis eru meiðsl hans og er eitthvað komið í ljós með hversu alvarleg þau eru?
"Það er ljóst að um er að ræða nárameiðsli, tognun að öllum líkindum. Við erum að bíða eftir að fá frekar niðustöður frá sjúkrateyminu okkar. Þangað til það er ljóst er lítið meira hægt að segja"
Fleiri sem eru meiddir hjá ykkur, hver er staðan á Brynjari og Birni þessa stundina?
"Brynjar er sem fyrr handarbrotinn en Björn lenti illa á annarri hendinni í leik 1 gegn Njarðvík og bólgnaði upp. Í leik 2 og 3 fékk hann högg á hendina sem varð til þess að hann átti erfitt með að grípa boltann einsog sást oft á tíðum í leiknum í gær. Þetta eru þannig meiðsl að höndin þarf smá frið til að jafna sig en hann verður orðinn góður fyrir undanúrslitin"
Þið ákveðið að sækja Helga til Bandaríkjanna, afhverju gerið þið það?
Hvað kemur hann með að borðinu?
"Einfaldlega vegna meiðsla lykilleikmanna. Við Helgi höfum gantast með þennan möguleika í vetur útaf öllum meiðslunum en þegar Brynjar meiðist þetta alvarlega á þessum tímapunkti þá förum við að skoða þetta af alvöru, hvort það gangi upp. Fyrst það var möguleiki á því þá var þetta engin spurning. Helgi kemur auðvitað inn með mikla reynslu, gæði og leiðtogahæfileika. Hann hefur sýnt það á þessum æfingum sem hann hefur kíkt á í vetur að hann hefur litlu gleymt og smellur ávallt vel inní hópinn"
Fyrrum leikmaður ykkar, Finnur Atli Magnússon að skjóta á að það sé “panik” hjá stórveldinu, viltu svara eitthvað fyrir það?
"Þetta er bara skemmtilegur banter. Þeir eru náttúrulega bræður Finnur og Helgi og hann væntanlega búinn að vita af þessum pælingum í einhvern tíma og eflaust búinn að plana þetta tweet í dágóðan tíma. Annars er okkur nokk sama hvað öðrum finnst um þetta. Við erum tilbúnir að gera það sem þarf ef við teljum það auki möguleika okkar til að fara alla leið. Þetta er búið að vera mikið vandræða tímabil bæði hvað varðar meiðsli og hræringar á kanamálum. Þrátt fyrir það erum við komnir áfram í undanúrslitin enn eitt árið. Það sýnir einfaldlega styrkinn í liðinu, enda efast ég um að önnur lið hefðu höndlað viðlíka áföll yfir tímabilið"



