Keflvíkingar mættu með bakið upp við vegginn fræga í Schenker-höll Haukamanna. Alþjóð veit að Haukar unnu á ævintýralegan hátt í Keflavík í síðasta leik og komust í 2-0 í einvíginu. Flestir gerðu því ráð fyrir öruggum heimasigri í kvöld en aldrei, aldrei, ALDREI afskrifa drengina frá Sunny-KEF…
Spádómskúlan: Kúlan er hræðilega áhugalaus að þessu sinni og hendir í andlitið á mér 90-75 öruggum heimasigri. Fýlupúki.
Þáttaskil
Guðmundur Jónsson var svo áberandi vel tengdur frá upphafi að undirritaður hafði alvarlegar áhyggjur af velferð hans myndu Keflvíkingar ekki ná sigri í þessum leik. Hann ætlaði EKKI að tapa þessum leik. Hann leiddi sitt lið og gestirnir náðu að halda nefinu á sér á undan allan fyrri hálfleikinn. Margir komu sér á blað hjá báðum liðum og snemma í öðrum leikhluta voru 11 leikmenn búnir að skora! Í hálfleik höfðu gestirnir 37-41 teppi.
Heimamenn virkuðu svolítið flatir í fyrri hálfleik en virtust ætla að rétta úr kútnum eftir hléið. Paul Jones átti afar góðan leikhluta og hann átti mestan heiðurinn að 52-43 forystu sinna manna þegar 6 mínútur voru eftir af leikhlutanum. Þarna fannst manni Keflavíkurliðið titra svolítið en Haukamenn náðu ekki að bæta við forskotið. Körfubolti er svo skemmtileg íþrótt að Gummi og Kári Jónssynir skiptust á glæsilegum þristum fyrir hálfleikaskiptin og munurinn var aðeins 5 stig, 63-58 og hörkuleikur í gangi.

Í upphafi fjórða komu Haukar sér aftur 9 stigum yfir, 70-61, en munið að Gummi Jóns ÆTLAÐI EKKI að tapa þessum leik og svaraði með körfu góðri. Vonin hélst á lífi hjá Keflavík og baráttan var til fyrirmyndar og segja má að þeir hafi uppskorið ávexti seiglunnar þegar Haxel og Raggi Braga smelltu tveimur þristum í röð og komu sínum mönnum yfir 71-73. Skömmu síðar fékk Gummi Jóns sína fimmtu villu en það dugði fyrir gestina að hafa hann sjóðandi eldrauðan og trylltan að hvetja af bekknum því gestirnir héldu að mestu forskotinu. Haxel var allt í öllu undir lokin og blokkaði Paul Jones í sniðskoti þegar 1 mínúta var eftir og Maggi kom KEF í 76-79. Til að gera langa sögu stutta upphófst bókstaflega ævintýraleg mínúta! Eins og allir vita gerist allt þrisvar sinnum í ævintýrunum eða þar til eitthvað þarf undan að láta og það var einmitt það sem gerðist! Kári Jóns fór 3svar á línuna en klúðraði alltaf fyrra skotinu og því seinna viljandi í lokin tímans vegna. Til að hafa þetta ekki alveg eins og Búkollu fóru Keflvíkingar aðeins tvisvar á línuna og settu líka bara annað vítið í bæði skiptin! Glöggir lesendur átta sig á því að leik lauk semsagt með þriggja stiga sigri Keflvíkinga, 78-81 í stórskemmtilegum leik.
Tölfræðin lýgur ekki
Hér væri helst að nefna tapaða bolta en Haukar töpuðu helmingi fleiri boltum í leiknum eða 16 á móti 8. Það skýrist e.t.v. af ákefðinni í varnarleik gestanna.

Hetjan
Guðmundur Jónsson fær þessa nafnbót án nokkurs vafa! Þvílíkur keppnismaður! Hann var með 20 stig, 9 fiskaðar villur, 4 fráköst og ENDALAUST af dugnaði, baráttu og vilja. Ef ég þarf af einhverjum óskýrðum ástæðum að fara til Sýrlands þá geri ég allt til þess að fá Gumma Jóns með mér…
Kjarninn
Haukar virðast ekki hafa verið alveg rétt stemmdir fyrir þennan leik og virkuðu of rólegir. Ef dómaratríóið hefði ekki tekið frekar harða línu hefðu gestirnir mögulega rúllað yfir þá! Það er gott að vera rólegur, en blóðið þarf að renna. Haukamenn eru yfir 2-1 og þurfa ekkert að missa sig í stress en næsti leikur verður í Sláturhúsinu…
Kef-City, hvað getur maður sagt? Jafnvel þó svo að Haukar klári seríuna 3-2 er tímabilinu að einhverju leyti bjargað hjá Keflavík. Gummi Jóns hristir hausinn yfir svona rugli því hann ætlar að vinna seríuna og ekkert kjaftæði…

Athygliverðir punktar:
- Til gamans ætla ég að gagnrýna Hauka enn og aftur fyrir mætinguna þó það hafi nákvæmlega engan tilgang. Hættið þessu handbolta-rugli og mætið á körfuboltaleiki.
- Stuðningsmenn KEF voru ekki mikið færri og létu vel í sér heyra, flott hjá þeim að mæta 2-0 undir.
- Undirritaður hefur kúluna grunaða um að hafa viljað jinxa leikinn til að fá fleiri skemmtilega körfuboltaleiki! Það tókst en kúlan þarf að taka sig alvarlega svo hún hlýtur harða gagnrýni.
Myndasafn
Umfjöllun / Kári Viðarsson
Myndir / Bára Dröfn
Viðtöl / Davíð Eldur
Viðtöl:



