Óvíst er með þátttöku leikmanns Stjörnunnar, Hlyns Bæringssonar, í fjórða leik liðsins gegn ÍR í 8 liða úrslitunum á morgun.
Hlynur fékk höfuðhögg í síðasta leik liðanna, en leikmaður ÍR, Ryan Taylor, hefur nú verið dæmdur í þriggja leikja bann fyrir þá háttsemi sína varðandi það atvik.
Samkvæmt þjálfara liðsins Hrafni Kristjánssyni æfði Hlynur takmarkað með liðinu í dag, en sagði hann að hann hafi aðeins skokkað og tekið skot.
Ljóst er að ef að Hlynur tekur ekki þátt er um mikið högg að ræða fyrir Stjörnuna, en landsliðsfyrirliðinn hefur leikið á alls oddi það sem af er úrslitakeppni, skorað 17 stig og tekið 20 fráköst að meðaltali í leik.
ÍR leiðir einvígið 2-1 og getur með sigri sent Stjörnuna í sumarfrí á morgun.



