Framherjinn Ólafur Helgi Jónsson mun ekki leika með Þór í Þorlákshöfn á næsta tímabili. Þetta staðfesti hann við Körfuna fyrr í dag. Segist hann ekkert vera búinn að ákveða hvert hann fari, en víst sé að hann verði ekki annað tímabil í Þorlákshöfn.
Ólafur kom til Þórs fyrir síðasta tímabil og hefur því leikið tvö tímabil fyrir félagið. Þar á undan lék hann fyrir uppeldisfélag sitt í Njarðvík.
Á síðasta tímabili skilaði hann 9 stigum, 7 fráköstum, stoðsendingu, stolnum bolta og vörðu skoti að meðaltali á 29 mínútum í leik. Þór endaði í 9. sæti deildarinnar, aðeins nokkrum stigum frá sæti í úrslitakeppninni.



