Einn leikur er í 8 liða úrslitum Dominos deildar karla í kvöld. ÍR heimsækir Stjörnuna í Ásgarð. Fyrir leikinn leiðir ÍR 2-1 í einvíginu og því geta þeir með sigri komist áfram í undanúrslitin.
Mikið hefur gengið á í þessari seríu fyrir utan sjálfan körfuboltann. Brotist var inn í klefa Stjörnunnar í fyrsta leik og þá var erlendur leikmaður ÍR, Ryan Taylor, dæmdur í þriggja leikja bann eftir þann síðasta, en áhugavert verður að sjá hvernig hinir leikmenn liðsins mæta stemmdir til leiks án hans í dag.
Ef Ásgarður verður ekki stútfullur í kvöld eftir það sem undan er gengið verð ég ílla svikinn #StjaÍR #korfubolti #leiðtilaðaukaaðsókn #oldschool #dominos365
— Stefan ArnarÓmarsson (@stefan_arnar) March 25, 2018
Leikur dagsins
8 liða úrslit Dominos deild karla:
Stjarnan ÍR – kl. 19:15 í beinni útsendingu Stöð 2 Sport
(ÍR leiðir einvígið 2-1)



