Viðureign ÍR og Stjörnunnar í átta liða úrslitum Dominos deildar karla lauk í gær þegar ÍR vann leik fjögur í einvíginu. Þrátt fyrir það er umræðan á alnetinu ekki búin. Serían var gríðarlega viðburðarík innan sem utan vallar og sér ekki fyrir endan á því.
Eftir leik gærkvöldsins var mynd dreift á netinu af stuðningsmanni ÍR sem hélt á Stjörnutreyju með borða sem á stóð "Dramaqueen". Tóku því margir þannig að treyjunni væri beint til landsliðsfyrirliðans Hlyns Bæringssonar sem samkvæmt því væri þá að gera mikið úr höfuðmeiðslum sínum. Líkt og allir ættu að vita eru höfuðmeiðsli gríðarlega alvarleg og því margir sem þótti miður að meiðsli Hlyns væru töluð niður með þessum hætti.
Eins mikið og ég samgleðst ÍR að komast í semi er þetta aftur á móti algjörlega til háborinnar skammar! Hlynur Bæringsson á meira skilið en þetta. Treyjan var svo geymd á bekknum með borðanum hjá ÍR liðinu. Kalla eftir standard takk við fràbæran íþróttamann og fyrirmynd. pic.twitter.com/gy9ltUu7pZ
— Rikki G (@RikkiGje) March 25, 2018
Það eru rett momment fyrir banter. Hlynur spilaði ekki i dag vegna höfuðmeiðsla. Sem allir yfir greindarvísutölu vita að eru alvarleg meiðsli og geta endað feril leikmanna.Stayclassy @IR_Korfubolti vonandi verður ykkur sopað ut. pic.twitter.com/eDJ7S4mPps
— Máni Pétursson (@Manipeturs) March 25, 2018
Margir tóku undir þessi orð útvarpsmannanna á samfélagsmiðlum í gær og má segja að hópurinn "Dominos Spjallið" á Facebook hafi logað með misgáfulegum ummælum. Ljóst var að mikil reiði var gagnvart stuðningsmönnum ÍR og þá ekki minnst gagnvart stuðningsmanninum á myndinni sem sendi frá sér yfirlýsingu í morgun vegna umræðunnar.
Yfirlýsing í kjölfar umræðna eftir leik Stjörnunar og ÍR #dominos365 pic.twitter.com/4nWWq3Z0NL
— orri rafn (@OrriRafn) March 26, 2018
Fréttablaðið ræddi svo við formann körfuknattleiksdeildar ÍR fyrr í dag sem tók alvarlega í þessa gagnrýni á stuðningsmenn. „Ég hef aðeins heyrt af þessu en ég stend í þeirri trú að þessum skilaboðum hafi ekki verið beint til Hlyns sem allir í körfuboltahreyfingunni bera ótrúlega virðingu fyrir,“ sagði Guðmundur Óli í samtali við Fréttablaðið og sagði einnig.
„Það er stutt siðan við misstum Stefán (Karel Torfason) út vegna höfuðmeiðsla og við vitum að svona meiðsli eru alls ekkert gamanmál. Ef það er satt að þeir hafi verið að gera grín að þessu eru það forkastanlegt en ég trúi því ekki að okkar góðu stuðningsmenn séu svona ónærgætnir og ábyrgðarlausir.“
Það andar því nokkuð köldu á milli stuðningsmanna þessara liða eftir seríuna. Borche Ilievski þjálfari ÍR sagðist finna fyrir því í einvíginu og líkti móttökunum í Ásgarði fyrir leik í gær við jarðaför. Þá sagðist hann vona að samskipti félaganna yrðu aftur góð. Hrafn þjálfari Stjörnunnar tók í sama streng og sagði nokkur atvik í einvíginu hafa orðið til þess að svipta gleðinni af þessu.




