Keflavík knúði fram oddaleik í einvígi sínu gegn Haukum í átta liða úrslitum Dominos deildar karla. Leikur liðanna í kvöld var æsispennandi og voru liðin jöfn á nánast öllum tölum framan af fjórða leikhluta.
Oddaleikur liðanna fer fram næstkomandi miðvikudag 28. mars kl 19:15. Leikurinn fer fram að Ásvöllum í Hafnarfirði. Ljóst er að stemmningin verður rosaleg og sérstaklega ef miðað er við stemmninguna í TM-höllinni í kvöld.
Líkt og áður voru körfuboltaáhugamenn virkir á Twitter eftir leik og má finna það besta þaðan hér að neðan:
Það eru forréttindi að hafa einn Gumma Jóns. Hann er geggjaður #dominos365 #þaðerslökkviliðáegilsstöðum
— Vidar Hafsteinsson (@vidarhafsteins) March 26, 2018
Ég ætla rétt að vona að husverðirnir í Sláturhúsinu hafi lækkað skilrúmið svona til vonar og vara #korfubolti
— Árni Jóhannsson (@arnijo) March 26, 2018
Kef is LIT. #korfubolti #dominos365 pic.twitter.com/x73Zd4R1b9
— Hörður Tulinius (@HordurTulinius) March 26, 2018
Passion! Sláturhúsið is back og það er svooo mikið #sinnep #dominos365 pic.twitter.com/mM0Irw6TsJ
— Sævar Sævarsson (@SaevarS) March 26, 2018
Mikill karakter í Keflvíkingunum. Það þarf kjark, dug og þor að koma til baka eftir tapið með Buzzernum og vinna næstu 2 leiki og tryggja sér oddaleik #Dominos365
— Davíð Már (@DavidMarKrist) March 26, 2018
Hvað er langt síðan síðast að liðið í efsta sæti var slegið út af liðinu í áttunda sæti í úrslitakeppninni? Benni Gum og UMFG '98? #dominos365 #korfubolti
— Sturla Stígsson (@sturlast) March 26, 2018
Oddaleikur.. VEISLA _x1f389__x1f3c0_ #dominos365
— Ásta Dagmar (@astadagmar) March 26, 2018
Haukar eru ekki bara búnir að kúka BL lógóinu. KEF city komnir í verðskuldaðan oddaleik! #korfubolti pic.twitter.com/MkhDtWX7RZ
— Sigurður Örn (@sohilmarsson) March 26, 2018
ég elska körfubolta
— brynjar (@BrynjarKri) March 26, 2018
#afléttumbölvuninni #dominos365 https://t.co/N7ZU3zippn
— Gísli Árni Gíslason (@GisliArni) March 26, 2018
S/o á bróðir minn @Baldvins97 pic.twitter.com/L56Ya75o7a
— Björn Geir (@partygeir) March 26, 2018
Það eru trúðar í öllum svona stuðningshópum, það nkl ekkert nýtt en það virðist orðin lenska hjá stuðningsmönnum tapliðsins að setja fókus á það frekar en góðan leik og frábæran stuðning hinna 99,9%… _x1f44c__x1f3fc_
— Sævar Sævarsson (@SaevarS) March 26, 2018
Ekki langt síðan við tókum oddaleik gegn Kef í Firðinum fagra. Gerum það aftur á miðvikudaginn undanúrsltin bíða #körfubolti #haukarnation #dominos365
— HaukarKarfa (@HaukarKarfa) March 26, 2018
Það skín í gegn þessi hugarfarsbreyting sem hefur átt sér stað í síðustu tveimur leikjum hjá Kef! Svona á úrslitakeppni að vera! #dominos365
— Ísak Örn Þórðarson (@isakthordar) March 26, 2018
Ghetto gospel vs pepperoni squad í undan úrslitum! Litla veislan sem það yrði #dominos365 #óþekktarangar
— Egill "Big Baby" Birgis (@Storabarnid) March 26, 2018
Viltu fa annað program?
— Finnur Magnusson (@FinnurMagg) March 26, 2018
Ég setti barinn í pásu seinustu mínutuna -fær enginn afgreiðslu fyrr en Keflavík klárar þennan leik #dominos365
— Fyrirmyndar múslimi (@Chronic_Thunder) March 26, 2018




