Keflavík sigraði Hauka 75-72 í fjórða leik 8 liða úrslitaeinvígis liðanna í Dominosdeildarinnar. Staðan því 2-2, en oddaleikur milli liðanna verður á miðvikudagskvöldið í DB Schenker Höllinni í Hafnarfirði.
Fyrir leik
Keflvíkingar að sjálfsögðu með bakið upp við vegg, líkt og í síðasta leik, en með sigri hefðu Haukar sent þá í sumarfrí. Ljóst var á mætingu í leik kvöldsins hvað var undir, ekki voru þar bara mættir hundruðir harðra Keflvíkinga, heldur var þar einnig stór hópur stuðningsmanna Hauka sem létu vel í sér heyra á meðan leik stóð. Heilt yfir stórkostleg stemming í Keflavík í kvöld.

Gangur leiks
Gestirnir úr Hafnarfirði litu eilítið betur út í upphafi leiks. Kári Jónsson setti 3 af 3 þriggja stiga skota sinna niður í 1. leikhlutanum. Þegar mest lét voru Haukar með 7 stiga forystu þessar upphafsmínútur, en fyrsti leikhlutinn endar 20-23 þeim í vil.
Heimamenn fara vel af stað í upphafi annars leikhlutans, komast í nauma forystu í 33-27 um miðbygg hlutans. Mestur fór munur Keflavíkur í 8 stig undir lok hálfleiksins, en þegar dómarinn sendi liðin til búningsherbergja í hálfleik voru heimamenn 4 stigum yfir, 42-38.
Atkvæðamestir í fyrri hálfleiknum voru Hörður Axel Vilhjálmsson fyrir Keflavík með 12 stig á meðan að fyrir Hauka var það Kári Jónsson sem dróg vagninn með 15.
Leikurinn var jafn og spennandi frá upphafi til enda seinni hálfleiksins. Heimamenn þó skrefinu á undan nánast allan tímann. Eftir þrjá leikhluta voru heimamenn 2 stigum yfir, 57-55. Í fjórða leikhlutanum munar sama og engu á liðunum, ein sókn til eða frá skipti sköpum fyrir liðin. Á endanum eru það þó heimamenn sem hafa þriggja stiga sigur 75-72.

Tölfræðin lýgur ekki
Haukar töpuðu 20 boltum í leik kvöldsins á móti aðeins 13 hjá Keflavík. Flestum töpuðu Kári Jónsson og Paul Anthony Jones, 5 hvor um sig.
Hetjan
Christian Dion Jones var frábær í liði Keflavíkur í kvöld. Skilaði 20 stigum, 9 fráköstum, 5 stoðsendingum og 2 stolnum boltum á þeim 34 mínútum sem hann spilaði.

Vörn úrslitakeppninnar
Eftir að hafa fengið 86 stig á sig að meðaltali í leik í deildinni í vetur er Keflavík að halda efsta liði deildarinnar í 79 stigum að meðaltali í þessu einvígi, en Haukar skoruðu 89 stig að meðaltali (ásamt Grindavík mest allra liða) í leik í deildinni í vetur.
Kjarninn
Það má varla milli sjá á milli þessara liða síðustu þrjá leiki, hvað þá að þarna sé um að ræða liðin í 1. og 8. sæti deildarkeppninnar. Í raun og verunni gæti annað hvort liðið verið búið að klára þetta og haldið til undanúrslita. Oddaleikurinn komandi miðvikudag verður vonandi líkur þessum síðustu þremur.
Upphaf sumarfrís Keflavíkurliðsins:
2016: 28.mars
2015: 2.apríl
2014: 28.mars
2013: 28.mars
Er ekki hægt að banna leiki 28.mars? #dominos365— Gísli Árni Gíslason (@GisliArni) March 28, 2016
Sagan
Ekki mörgum liðum hefur tekist að snúa við 2-0 stöðu í einvígi líkt og Keflavík hóta að gera á miðvikudaginn. Haukar gerðu það þó fyrir þremur árum, en þá voru það þeir sem voru komnir 0-2 undir á móti Keflavík áður en þeir snéru því við og slógu þá út.
Dagsetning komandi miðvikudags hentar Keflvíkingum einkar illa ef tekið er tillit til sögunnar. Þrjú af síðustu fjórum árum hafa þeir verið slegnir út þann 28. mars, 2013, 2014 og 2016. Árið 2015, gegn Haukum, voru þeir slegnir út 2. apríl.
Umfjöllun / Davíð Eldur
Myndir / Bára & SBS
Viðtöl / Davíð Eldur
Viðtöl:



