HomeFréttirMarkelle Fultz spilaði körfuboltaleik

Markelle Fultz spilaði körfuboltaleik

 

Fimm leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Að mestu leyti ráðið hvaða lið það verða sem verða í úrslitakeppninni í Austurströndinni. Vesturstrandarmegin er það hinsvegar ekki alveg ráðið. Tvö lið sem eru í þeirri baráttu töpuðu leikjum sínum í nótt. Denver Nuggets fyrir liði Philadelphia 76ers og Minnesota Timberwolves fyrir botnliði Memphis Grizzlies.

 

Stóra frétt næturinnar var sú að leikmaður Philadelphia 76ers Markelle Fultz er farinn að spila aftur eftir margra mánaða fjarveru, en hann var valinn með fyrsta valrétt nýliðavalsins fyrir þetta tímabil. Spilaði hann 14 mínútur í leiknum, á þeim skoraði hann 10 stig og gaf 8 stoðsendingar. 

 

Það helsta úr endurkomu Fultz:

 

 

Staðan í deildinni

 

 

Úrslit næturinnar

New York Knicks 128 – 137 Charlotte Hornets

Los Angeles Lakers 106 – 112 Detroit Pistons

Denver Nuggets 104 – 123 Philadelphia 76ers

Memhis Grizzlies 101 – 93 Minnesota Timberwolves

Boston Celtics 102 – 94 Phoenix Suns

Fréttir
- Auglýsing -