Það er komið að leiknum sem allir körfuboltaáhugamenn hafa beðið eftir með eftirvæntingu frá því á mánudag. Oddaleikur í einvígi Hauka og Keflavíkur í Dominos deild karla fer fram í kvöld.
Liðin hafa unnið sitthvora tvo sigrana hingað til og því hreinn úrslitaleikur í kvöld um hvort liðið kemst áfram í undanúrslit. Hjólin virðast hafa snúist hressilega en fyrir einvígið voru deildarmeistarar Hauka mun líklegri til sigurs í einvíginu en Keflavík hafði átt ansi brösugt tímabil í deildarkeppninni. Samkvæmt könnun sem gerð var á Twitter í gær virðast fleiri hinsvegar vera á því að Keflavík sigri seríuna.
Hvort liðið sigrar oddaleikinn annað kvöld? #korfubolti
— Karfan.is (@Karfan_is) March 27, 2018
Þessi lið hafa tvisvar mæst innbirgðis í oddaleik átta liða úrslita, það ar árin 2015 og 2002. Þar skiptust liðin á sigrum á sínum heimavelli. Síðast unnu Haukar 2015 eftir að hafa lent 2-0 undir í einvíginu rétt eins og Keflavík gerði í ár. Þetta er einungis þriðji oddaleikur þessara liða í sögu úrslitakeppninnar því auk þessara tveggja leikja í átta liða úrslitum þá mættust þau einnig í undanúrslitum árið 1988. Þar voru það Haukar sem höfðu sigur í Keflavík eftir framlengdan leik.
Það verður því seint sagt að líkurnar séu með Keflavík fyrir oddaleikinn ef horft er til sögunnar. Ekki batna þær þegar horft er til þess að á þessum 23 árum sem átta liða úrslit hafa farið fram hefur lið í áttunda sæti einungis einu sinni slegið deildarmeistara úr leik. Það var árið 1998 þegar ÍA sem endaði í áttunda sæti sendi Grindavík sem enduðu efstir í snemmbúið sumarfrí.
Ljóst er að Ásvellir verða pakkaðir í kvöld. Skírdagur á morgun og mikið um frí svo afsakanir fyrir því að komast ekki á leikinn eru af skornum skammti. Veðurspáin er ljómandi fín og ætti Reykjanesbrautin því að vera rennifær á morgun. Stuðningsmannasveitir liðanna hafa heldur betur verið í góðu stuði og má gera ráð fyrir að slíkt hið sama verði uppá teningnum í kvöld.
Leikurinn hefst kl 19:15 og fer fram að Ásvöllum í Hafnarfirði. Líkt og við var að búast er leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Auk þess sem fjallað verður ítarlega um leikinn og honum gerð góð skil á Karfan.is síðar í kvöld.




